Körfubolti

Sigur hjá Jóni Arnóri en tap hjá Hauki Helga

Jón Arnór.
Jón Arnór.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í spænska liðinu Zaragoza unnu sinn fyrsta leik í deildinni í dag. Zaragoza hafði lítið fyrir sigrinum og vann 86-66.

Jón Arnór skoraði 8 stig og tók 4 fráköst í leiknum.

Það gekk ekki eins vel hjá Hauki Helga Pálssyni og félögum hans í Assignia Manresa sem töpuðu, 61-49, gegn Blusens Monbus.

Haukur Helgi skoraði 5 stig og gaf eina stoðsendingu að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×