Erlent

Monty Python hópurinn kemur saman að nýju

Hinn þekkti grínhópur Monty Python hefur sameinast að nýju til að raddsetja þrívíddarmynd sem byggð er á minningum Graham Chapman eins af hópnum en Chapman lést af völdum krabbameins árið 1989 aðeins 48 ára gamall.

Þeir John Cleese, Terry Gilliam, Michael Palin og Terry Jones taka þátt í myndinni en Eric Idle verður ekki með.

Samkvæmt frétt um málið á BBC var létt yfir hópnum í upptökuverinu. Jones mun hafa sagt þar að hann hefði ekki haft hugmynd um að Chapman væri látinn, aðeins talið að hann væri í letikasti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×