Þyrfti að greiða hálfar árstekjur í túlkakostnað Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 23. desember 2016 07:00 Áslaug Ýr Hjartardóttir þarf að greiða túlkaþjónustu úr eigin vasa fyrir sumarbúðir. vísir/Anton Brink
Áslaug Ýr Hjartardóttir fær ekki endurgjaldslausa túlkaþjónustu fyrir sumarbúðir daufblindra ungmenna sem hún hyggst fara í í Svíþjóð næsta sumar. Hún sendi pöntun í ágúst en fékk ekki endanlegt svar fyrr en hún spurði nýverið hvert fyrirkomulagið með veitingu slíkrar þjónustu væri þegar farið er til útlanda. Þá fékk hún það svar að ekki væri gert ráð fyrir slíku. „Það gerist of oft að mér er synjað um túlkaþjónustu, en ég fékk til dæmis ekki túlka í minni útskriftarveislu og það situr enn í mér þó það sé heilt ár síðan,“ segir Áslaug. Hún segir að í seinni tíð hafi sér alltaf verið synjað um túlka fari hún til útlanda. „Ég hef tvívegis áður farið í sumarbúðir fyrir daufblinda, í fyrra skiptið fór ég til Finnlands og fékk faglærða túlka en í seinna skiptið var það Danmörk og þá þurfti ég sjálf að redda ófaglærðum túlkum.“ Áslaug Ýr segir ekki ódýrt að greiða fyrir túlkaþjónustuna sjálf. „Í fyrra skiptið minnir mig að ég hafi borgað flug og gistingu en ekki laun túlkanna, en ég er samt ekki alveg viss. Í seinna skiptið þurfti ég að borga allt,“ segir hún og bætir því við að hún hafi fengið styrki frá Fjólu, félagi fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, og Blindrafélaginu. „En af því að kostnaðurinn var miklu meiri en styrkirnir hefði ég ekki getað farið nema af því að ég fékk styrk frá nokkrum góðum sjómönnum upp á tæpa milljón,“ segir Áslaug. Hún segir enn fremur að túlkakostnaður fyrir ferðina sé á við hálfar árstekjur öryrkja. Greiða þurfi tveimur túlkum laun í fimm daga auk þess að greiða flug, mat og gistingu fyrir túlkana. „Ef ég er heppin mun þetta bara kosta samtals 1.040.000 kr. (bara túlkarnir, ekki ég eða aðstoðarfólkið). Ég veit að það eru mjög litlar líkur á að Fjóla geti styrkt mig í þetta skiptið, þar sem félagið á sjálft í fjárhagsörðugleikum. Ég er orðin dauðþreytt á að vera alltaf að „betla“ peninga hjá hagsmunafélögum og fyrirtækjum fyrir eitthvað sem ríkið á að borga,“ segir Áslaug og bætir við: „Þetta er eitthvað sem enginn ætti að þurfa að borga sjálfur. Ég þarf nauðsynlega táknmálstúlka í þessar sumarbúðir þar sem ég er bæði heyrnarlaus og blind og mun ekkert geta verið með án þeirra.“ Áslaug segir Ísland eina sjálfstæða landið á meðal Norðurlanda sem veiti ekki endurgjaldslausa túlkaþjónustu þegar farið er til útlanda. „Það er staðreynd sem alltaf er verið að reyna að hylma yfir en er samt sönn.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Riddari kannana mætir í Samtalið Sjá meira