Erlent

Trump neitar að biðjast afsökunar á orðum um McCain

Atli Ísleifsson skrifar
Donald Trump mælist nú með mest fylgi meðal þeirra sem bjóða sig fram til að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins.
Donald Trump mælist nú með mest fylgi meðal þeirra sem bjóða sig fram til að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins. Vísir/AFP
Bandaríski auðjöfurinn og forsetaframbjóðandinn Donald Trump hefur neitað að biðjast afsökunar á orðum sínum um að öldungadeildarþingmaðurinn John McCain væri ekki „stríðshetja“.

Trump lét orðin falla á fundi í Iowa á laugardag og hafa þau sætt mikilli gagnrýni.

Fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar ABC spurði Trump í viðtali hvort hann ætti ekki að biðja McCain, sem var stríðsfangi í Víetnam um fimm ára skeið, afsökunar. „Nei, alls ekki. Fólk barðist ötullega,var ekki tekið til fanga og þurfti að þola margt. Enginn lofar þá. Enginn talar um þá. Þeir eru gleymdir. Og það þykir mér miður, ef ég á að segja alveg eins og er,“ segir Trump, sem bætti við að þetta fólk væru líka hetjur.

Í samtali við Fox News hélt Trump svo árásum sínum á McCain áfram og sakaði hann um hafa ekki skilað miklu til þess að bæta heilsuvernd fyrrum hermanna. „Þetta er allt í orði en ekkert á borði hjá honum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×