Enski boltinn

Deeney lagði upp með að leggjast á Lovren

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Deeney í baráttunni við Lovren í gær.
Deeney í baráttunni við Lovren í gær. Vísir/Getty

Troy Deeney, framherji Watford, skoraði eitt marka liðsins í ótrúlegum 3-0 sigri á verðandi Englandsmeisturum Liverpool í gær. Hann viðurkenndi eftir leik í viðtali við Sky Sports að leikplan hans hafi verið að leggjast á Dejan Lovren frekar en Virgil van Dijk.

Ætti það ekki að koma neinum á óvart þar sem Van Dijk er með betri miðvörðum í heimi um þessar myndir á meðan Lovren er af mörgum ekki talinn nægilega góður fyrir Liverpool liðið.

Deeney var frábær í leiknum á meðan Lovren átti vægast sagt slæman dag. 

Sjá einnig:Ótrúlegt gengi Liverpool á enda

„Van Dijk er öflugur leikmaður og meðal bestu varnarmanna í heiminum í dag. Hann er stór, sterkur ásamt því að vera fljótur. Þess vegna ákvað ég að sækja nær eingöngu á Lovren, með fullri virðingu fyrir honum," sagði Deeney til að mynda eftir leik. 

Watford vann eins og áður sagði leikinn 3-0 og Deeney skoraði ásamt því að leggja upp. Það var hins vegar hinn ungi Ismaïla Sarr sem stal fyrirsögnunum en hann skoraði hin tvö mörk leiksins. Það síðara var mjög snyrtilegt en hann lyfti boltanum þá yfir Alisson í marki Liverpool eftir að Deeney hafði sent knöttinn í gegnum vörn Liverpoo.


Tengdar fréttir

Watford rótburstaði Liverpool | Arsenal heldur metinu

Watford varð fyrsta liðið til að leggja Liverpool af velli í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en liðið kjöldró gesti sína úr Bítlaborginni á Vicarage Road í kvöld. Lokatölur 3-0 Watford í vil.

Ótrúlegt gengi Liverpool á enda

Liverpool tapaði einkar óvænt 3-0 gegn Watford á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Var það fyrsta tap liðsins í úrvalsdeildinni á tímabilinu en alls hafði liðið farið 44 leiki án þess að tapa leik. Það er áður en það mætti á Vicarage Road, heimavöll Watford í gærkvöld.

Pearson: Þetta er bara einn sigurleikur

Nigel Pearson, þjálfari Watford, var eðlilega í skýjunum með 3-0 sigur sinna manna á Evrópumeisturum Liverpool fyrr í kvöld. Hann fór sparlega í yfirlýsingarnar að leik loknum.

„Þeir gerðu það sem þeir vildu“

Það var ekki bjart yfir Jürgen Norbert Klopp, þjálfara Liverpool, eða Virgil van Dijk, helsta varnarmanni þeirra, eftir 3-0 afhroð liðsins gegn Watford í gærkvöld. Var það fyrsta tap Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en hins vegar annað tap þeirra á aðeins 11 dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×