Innlent

Kviknaði í pappa í húsþaki á Seljavegi

Andri Eysteinsson skrifar
Frá vettvangi á Seljavegi í kvöld.
Frá vettvangi á Seljavegi í kvöld. Vísir/Frikki

Eldur kom upp í pappa í húsþaki á Seljavegi nú á sjöunda tímanum.

Að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru sveitir frá tveimur stöðvum sendar á staðinn en eldurinn hafði verið slökktur þegar slökkvilið bar að garði. 

Að sögn slökkviliðsins tengist eldurinn framkvæmdum sem eru á staðnum og aðstoðar slökkvilið við frágang á vettvangi.

„Okkar menn eru á staðnum að bleyta aðeins upp í þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×