Búist er við norðvestan stormi með 20 til 30 metrum á sekúndu, snjókomu og skafrenningi og jafnvel stórhríð á þessum slóðum þegar verst lætur. Þá geta vindhviður geta náð allt að 45 metrum á sekúndu á Austfjörðum þar sem veðrið verður hvað verst.
Fólk er hvatt til þess að tryggja lausamuni til að forðast foktjón. Ekkert ferðaveður er á þessum slóðum á meðan veðrið gengur yfir og eru vegfarendur hvattir til þess að fylgjast með veðurspá á vefsíðu Veðurstofu Íslands og færð og ástandi vega á vefsíðu Vegagerðarinnar.