Litblindir kvörtuðu mikið vegna leiks Liverpool og Man. Utd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2021 11:30 Anthony Martial hjá Manchester United fer framhjá Liverpool manninum Thiago en Fabinho fylgist með. EPA-EFE/Paul Ellis Hundruð kvartana hafa komið fram eftir útsendinguna frá stórleik Liverpool og Manchester United um helgi.
Það var þó ekki verið að kvarta yfir markaleysinu þótt að leikurinn hafi endað með markalausu jafntefli. Stóra vandamálið með sjónvarpsútsendinguna frá leiknum voru búningar liðanna tveggja. Hér áður fyrr, þegar leikir voru sendir út í svarthvítu, þá þurfti að passa upp á það að liðin spiluðu í ljósum og dökkum búningum. Síðan að skipt var yfir í lit þá hafa menn oftast fylgt sömu vinnureglu en ekki alltaf. Það sannaðist á Anfield á sunnudaginn. Búningar Liverpool og Manchester United um síðustu helgi féllu nefnilega algjörlega á litaprófinu. This is not something that you will always hear , or see...? Hundreds of colour-blind fans have expressed their discontent at @ManUtd's green away kit choice as they had trouble distinguishing it from @LFC's traditional red top. https://t.co/QrewnyFb4c— FOX Sports Asia (@FOXSportsAsia) January 19, 2021 Manchester United hefur vanalega notað hvíta búninginn sinn, með svörtu röndunum, í útileikjum sínum en mættu að þessu sinni í grænum búningum. Það reyndist síðan nánast ómögulegt fyrir litblinda að sjá muninn á þeim búningum og rauða búningi Liverpool manna. ESPN segir frá óánægju litblindra og að kvörtunum hafi rignt yfir Twitter-síðu baráttusamtaka litblindra í Bretlandi, @colourblindorg. „Þetta er alltaf að gerast en þetta hefur verið sérstaklega slæmt síðasta árið,“ sagði Kathryn Albany-Ward, framkvæmdastýra Colour Blind Awareness samtakanna, í viðtali við ESPN. Hún nefndi annan leik með sama vandamál sem var leikur Southampton og Sheffield United. Hins vegar var áhuginn svo miklu meiri á stórleik Liverpool og Manchester United og því hafa kvartanirnar aldrei verið fleiri. Einn af hverjum tólf karlmönnum og ein af hverjum 250 konum glíma við arfgenga lindblindu og það ætti því að vera krafa um að þeir geti greint á milli liðanna sem eru að spila. NFL-deildin í Bandaríkjunum hefur sem dæmi hert sínar búningareglur til þess að passa upp á að svona hlutir gerist ekki og að allir geti séð í hvoru liði leikmennirnir séu.
Enski boltinn Mest lesið KR slítur samstarfinu „án nokkurs fyrirvara“ Íslenski boltinn Ólafur Karl þénaði mest af leikmönnum Bestu deildarinnar í fyrra Íslenski boltinn Raygun á rúðuþurrkunni og brettakappinn í klósettinu Sport KR áfrýjar niðurstöðu KSÍ Íslenski boltinn Kristján tekjuhæsti þjálfarinn á Íslandi Sport Hafði gott af of löngu banni Íslenski boltinn Stúkan ræddi kæru KR-inga: „Mér finnst hún skandall og ekkert annað“ Íslenski boltinn KSÍ hafnar kröfu KR Íslenski boltinn Kallaði Kevin Durant veikgeðja Körfubolti Pétur í aflitun eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Fleiri fréttir Loks hreyfing á skrifstofunni hjá Liverpool Palmer besti ungi leikmaðurinn en þó ekki í liði ársins Antony hreinsaður af ásökunum í Brasilíu Fulham tekur Berge fram yfir McTominay Síungur Vardy tryggði nýliðunum stig Félix á leið til Chelsea á meðan Gallagher fer í hina áttina Guardiola: Haaland líður betur en á sama tíma í fyrra Þurftu að stækka klefann hjá Chelsea Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Meistararnir byrja á sterkum sigri Brentford byrjar tímabilið á sigri Stefán Teitur fær þriðja þjálfarann í jafn mörgum leikjum Brady ánægður með ráðherrasoninn „Engar áhyggjur, við hittumst aftur“ Slot sammála Klopp varðandi hádegisleiki Durán sökkti Hömrunum Íslendingar á Englandi: Jóhann Berg og Willum Þór á skotskónum Milner sló met Giggs og tíu Newcastle-menn lönduðu sigri Havertz og Saka afgreiddu Úlfana „Ansi mikið breytt“ með komu Slots Sagði eyrnabólgu skýra fjarveru Sancho Salah sjóðheitur af stað að vanda „Ekki gott að við séum með 43 leikmenn“ „Það sjá allir hve mikilvægir varamenn eru“ Zirkzee hetjan í sínum fyrsta leik Schmeichel skammar Shaw fyrir að spila á EM Man. City dottið niður í ellefta sætið yfir mestu eyðsluna Ten Hag um kaupin á öllum þessum Ajax mönnum: Ekki bara mín ákvörðun Hafa eytt fjörutíu milljörðum í fyrrum lærisveina stjórans Sjá meira