Enski boltinn

Jökull lék allan leikinn í svekkjandi tapi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jökull Andrésson lék allan leikinn í 2-1 tapi Exeter í kvöld.
Jökull Andrésson lék allan leikinn í 2-1 tapi Exeter í kvöld. Getty/Jacques Feeney

Markvörðurinn Jökull Andrésson gat ekki komið í veg fyrir 2-1 tap Exeter City gegn Oldham Athletic í ensku D-deildinni í kvöld. Daníel Leó Grétarsson sat allan tímann á varamannabekk Blackpool er liðið vann 3-1 sigur á Peterborough United.

Hefði Harry Kewell, fyrrverandi þjálfari Oldham, fengið það sem hann vildi fyrir leiktíðina þá hefði hann ef til vill verið enn í starfi í leik kvöldsins. Kewell vildi nefnilega fá markvörðinn Sindra Kristinn Ólafsson til liðs við félagið frá Keflavík.

Allt kom fyrir ekki og var ekki um Íslendingaslag að ræða er Exeter heimsótti Boundary Park í kvöld. Kyle Jameson kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik og Alfie McCalmont tvöfaldaði forystuna þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Jack Sparkes minnkaði muninn fyrir Exeter en nær komust gestirnir ekki og lauk leiknum því með 2-1 sigri heimamanna. 

Oldham siglir lygnan sjó í 17. sæti deildarinnar með 45 stig á meðan Exter er í harðri baráttu um að komast í umspilssæti. Jökull og félagar eru sem stendur í 8. sæti, fjórum stigum frá Newport County sem er í 7. sæti deildarinnar. Liðin í 4. til 7. sæti fara í umspil um að komast upp í C-deildina.

Daníel Leó var eins og áður sagði allan tímann á bekknum í mikilvægum 3-1 sigri Blackpool í kvöld. Sigurinn lyftir Blackpool upp í 6. sæti – sem er síðasta umspilssætið í C-deildinni. Peterborough er í 2. sæti með 66 stig, aðeins tveimur stigum meira en Sunderland sem er í 3. sæti með leik til góða.

Efstu tvö lið deildarinnar fara beint upp í ensku B-deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×