Viðskipti innlent

Bein út­­­sending: Seðla­bankinn gerir grein fyrir ó­breyttum stýri­­vöxtum

Eiður Þór Árnason skrifar
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum á fundi sem hefst klukkan 9:30 í Seðlabankanum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 0,75%.

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar og Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri peningastefnu munu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndarinnar.

Ákvörðun Seðlabankans er í samræmi við væntingar markaðsins en bæði Íslandsbanki og Landsbanki höfðu spáð óbreyttum stýrivöxtum.

Horfa má á fundinn í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan.

Óvissa en útlit fyrir áframhaldandi bata

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar er vísað til þess að mikil óvissa sé um þróun efnahagsmála hér og erlendis sem muni að töluverðu leyti ráðast af framvindu faraldursins og hversu vel bólusetning gegn henni gengur. 

Samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum var samdráttur landsframleiðslu 6,6% í fyrra en í febrúarspá sinni hafði Seðlabankinn gert ráð fyrir að hann yrði 7,7%. Efnahagsumsvif reyndust því kröftugri en spáð hafði verið á síðasta fjórðungi ársins og samdrátturinn á fyrstu þremur fjórðungum ársins nokkru minni en fyrri tölur bentu til. Þá benda vísbendingar og kannanir til áframhaldandi bata það sem af er þessu ári að sögn Seðlabankans.

Verðbólga hjaðnaði í febrúar og mældist 4,1%. Fram kemur í yfirlýsingu peningastefnunefndar að áhrif gengislækkunar krónunnar í fyrra vegi enn þungt en séu líklega tekin að fjara út þar sem gengi krónunnar hafi hækkað nokkuð undanfarið. Því sé útlit fyrir að verðbólga taki að hjaðna í vor þótt nærhorfur hafi líklega versnað frá því í febrúar. 

Áætlað er að næsta vaxtaákvörðun verði kynnt 19. maí næstkomandi.


Tengdar fréttir

Stýrivextir haldast óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 0,75 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×