Lífið

Bassi Maraj hellir sér yfir Bjarna Benediktsson

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni svaraði Bassa vinalega á Twitterreikningi þess síðarnefnda en hefði kannski betur látið það ógert.
Bjarni svaraði Bassa vinalega á Twitterreikningi þess síðarnefnda en hefði kannski betur látið það ógert. vísir/vilhelm

Kosningabaráttan er hafin sem þýðir að frambjóðendur lenda í óvæntum ævintýrum. Formaður Sjálfstæðisflokksins lenti óvænt í hárblásaranum hjá helsta nýstirni Íslands.

Bassi Maraj er ein skærasta stjarnan á Íslandi í dag, er nýbúinn að senda frá sér rapplag sem er að gera það gott á Spotify svo um munar en Bassi sló í gegn í þáttunum Æði sem nálgast má á Stöð2 plús; sem fjallar um ævintýri Patriks Jaime og litríkra félaga hans.

Bassi lætur sér fátt mannlegt óviðkomandi og sló óvænt fram yfirlýsingu á Twittersíðu sinni þar sem hann væri nú svo hugmyndaríkur að hann ætti að splæsa í nokkrar góðar hugmyndir fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Bjarni sá sér leik á borði, að koma á samtali við yngri kynslóðina og þá sem frægastir eru í þeim ranni: „Allar hugmyndir vel þegnar,“ skrifað hann við þennan status sem virtist hin líknandi hönd. En viðbrögðin voru alveg örugglega ekki í samræmi við væntingar formanns Sjálfstæðisflokksins. Bassi snéri uppá sig svo um munaði, sló á útrétta hönd formannsins og svaraði Bjarna á mállýsku sem er nú þegar til rannsóknar hjá ýmsum málverndarhópum á netinu.

„Hér er hugmynd… hvar er nýja stjórnarskráin?“ svarar Bassi og bregður fyrir sig, að hætti frægra, enskunni: „With ya dumb ass face you aint eating but i swear u got some bum ass taste !? Og hvernig væri að redda mér reikning í panama with your scammin ass allavegana nota peninginn sem þú ert að scama i að kaupa handa mer burkin“.

Þegar þetta er skrifað hefur Bjarni ekki enn brugðist við þeim hugmyndum eða hinum óvæntu svörum Bassa. Og mun líklega hugsa sig um tvisvar áður en hann hættir sér í Bassa og félaga. Kosningabarátta eða ekki kosningabarátta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.