Ótrúleg slóð útsendara: Banatilræði, skemmdarverk og milliríkjadeilur Samúel Karl Ólason skrifar 18. apríl 2021 22:00 Frá mótmælum við sendiráð Rússlands í Prag i dag. Ríkisstjórn Tékklands hefur skipað átján erindrekum, sem sagðir eru vera útsendarar leyniþjónusta Rússlands, úr landi. EPA/MARTIN DIVISEK Yfirvöld í Tékklandi hafa rakið stóra sprengingu í vopnageymslu í landinu árið 2014 til umdeildrar deildar rússneskrar leyniþjónustu sem hefur verið sökuð um banatilræði og skemmdarverk í Evrópu. Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að svara fyrir sig og reka erindreka Tékklands úr landi.
Ásakanirnar frá Tékkum eru alvarlegar og saga útsendaranna sem sakaðir eru um að hafa valdið sprengingunni er markverð og flókin. Ríkisstjórn Tékklands lýsti því yfir í gær að tveir rússneskir menn, sem taldir eru hafa verið útsendarar GRU, leyniþjónustu herafla Rússlands, bæru ábyrgð á stórri sprengingu sem varð í vopnageymslu í Tékklandi árið 2014. Mennirnir tveir eru þeir sömu og voru ákærðir fyrir að hafa eitrað fyrir rússneska njósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans í Salisbury í Englandi árið 2018. Sjá einnig: Pútín kallar Skripal svikara og drullusokk Þann 16. október 2014 varð gífurlega stór sprenging í vopnageymslu í austurhluta Tékklands, sem hingað til hefur verið talið að hafi verið slys. Tveir menn sem störfuðu í vopnageymslunni dóu. Hér má sjá sjónvarpsfrétt DW sem inniheldur myndefni frá 2014, sem tekið var eftir sprenginguna. Fundu tölvupóst frá Rússlandi Síðan þá hafa rannsóknarlögreglumenn í Tékklandi grafist fyrir um málið og benda nú á tvo rússneska útsendara, sem taldir eru hafa tilheyrt sérstakri deild í GRU sem séð hafi um launmorð og skemmdarverk. BBC segir að meðal sönnunargagna Tékka sé tölvupóstur sem barst til Imex Group, fyrirtækisins sem rak vopnageymsluna, í aðdraganda sprengingarinnar. Sá póstur átti að vera frá Þjóðvarðliði Tadsíkistan og fjallaði um beiðni fyrir tvo menn til að skoða vopnageymsluna. Mennirnir tveir voru sagðir heita Ruslan Tabarov, frá Tadsíkistan, og Nicolaj Popa, frá Moldóvíu. Myndirnar sem fylgdu tölvupóstinum voru þó af sömu mönnum og ferðuðust til Bretlands árið 2018 undir nöfnunum Ruslan Boshirov og Alexander Petrov. Þeir hafa verið ákærðir fyrir að eitra fyrir rússneska njósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans. Notuðu sömu nöfn og í Salisbury Þegar þeir flugu til Prag í október 2014 notuðust þeir við nöfnin Boshirov og Petrov en ekki nöfnin sem þeir notuðu til að fá að skoða vopnageymsluna. Þeir gistu í Prag í tvær nætur og bókuðu svo hótel í nokkrar nætur til viðbótar, skammt frá vopnageymslunni sem sprakk. Í rauninni er talið að þeir heiti Anatolíj Tsjepiga og Alexander Mishkin og hafa þeir verið opinberaðir sem starfsmenn GRU, leyniþjónustu herafla Rússlands. Þeir munu tilheyra umdeildri deild í GRU sem kallast Unit 29155. Národní centrála proti organizovanému zlo inu SKPV, ádá v souvislosti s prov ováním okolností záva né trestné innosti o pomoc p i pátrání po dvou osobách. https://t.co/SJ5Opg5gXD#policiepp pic.twitter.com/oACMrPYSbg— Policie R (@PolicieCZ) April 17, 2021 Þá segir BBC að tölvupósturinn til Imex Group, sem hafi átt að koma frá Tadsíkistan, hafi verið rakin til Rússlands. Nánar tiltekið til manns sem notaði notendanafnið Andrey O á Skype. Maðurinn sem stýrði Unit 29155 hét Andrey Averyanov og er sagður hafa notast við dulnefnið Andrey Overyanov. Sjá einnig: Tékkar lýsa eftir sömu Rússum sem sakaðir voru um Skripal-árásina vegna stórrar sprengingar 2014 Í frétt Reuters er haft eftir fjölmiðlum í Tékklandi að til hafi staðið að senda vopn úr vopnageymslunni sem sprakk til búlgarska vopnasalans Emilian Gebrev. Hann er sagður hafa ætlað að selja vopnin til Úkraínu. Á þeim tíma sem vopnageymslan sprakk áttu Úkraínumenn í átökum við aðskilnaðarsinna, sem eru studdir af Rússum, í austurhluta landsins. Annar miðill í Tékklandi segir að vopnasendingin hafi mögulega verið á leið til uppreisnarmanna í Sýrlandi, sem Rússar áttu í átökum við fyrir hönd Bashar al-Assad, stjórnanda landsins. Gebrev er sagður hafa átt í viðskiptum við fleiri andstæðinga Rússlands. Sagðir hafa reynt að ráða vopnasalan af dögum Því hefur sömuleiðis verið haldið fram að rússneskir útsendarar Unit 21955 hafi reynt að ráða vopnasalan af dögum en ekki tekist það. Gebrev varð fárveikur í Sófíu í apríl 2015 og er talið mögulegt að eitrað hafi verið fyrir honum. Yfirvöld Í Bretlandi hafa áður sagt að þriðji Rússinn, Sergei Fedotov, hafi verið í Salisbury og stýrt árásinni á Sergei Skripal. Hann er einnig sagður hafa verið í Búlgaríu þegar talið er að eitrað hafi verið fyrir Gebrev. Ráðamenn í Búlgaríu segja að Fedotov og tveir aðrir menn frá Unit 29155 hafi leigt sér hótelherbergi í sama húsnæði og skrifstofa Gebrev var í í apríl 2015. Þeir hafi krafist þess að fá herbergi með útsýni þar sem inngangur bílastæðishúss byggingarinnar sæist. Upptökur úr öryggismyndavélum sem opinberaðar voru af saksóknurunum í Búlgaríu í fyrra sýndu mann ganga að bílum Gebrev, sonar hans og viðskiptafélaga. Allir þrír urðu veikir skömmu síðar og er talið að eitri hafi verið úðað á hurðahúna bíla þeirra. Mennirnir þrír voru ákærðir fyrir morðtilraun í fyrra. Talið er að taugaeitrinu Novichok hafi verið spreyjað á hurðahún útidyra heimilis Sergei Skripal þegar eitrað var fyrir honum. Rússum líklega meinuð aðkoma að útboði Ásakanirnar koma upp á viðkvæmum tíma í samskiptum Tékklands og Rússlands. Fregnir hafa borist af því að Tékkar hafi ætlað að hefja útboð á byggingu nýs kjarnorkuvers þar í landi. Öryggisstofnanir Tékklands höfðu farið fram á að rússneska fyrirtækinu Rosatom yrði meinað að taka þátt í útboðinu og var það sagt ógna öryggi Tékklands. Jan Hamacek, utanríkisráðherra Tékklands, og Andrej Babis, forsætisráðherra, á blaðamannafundi í gærkvöld. Þá tilkynntu þeir ákvörðun sína varðandi það að reka rússnesku erindrekana úr landi.EPA/MARTIN DIVISEK Karel Havlicek, iðnaðarráðherra Tékklands, svaraði fyrirspurn Reuters í dag á þann veg að mjög litlar líkur væru á því að Rosatom yrði með í útboðinu. Áður hafði hann verið hlynntur því að leyfa Rússum að taka þátt. Kenna Tékkum um slæmt samband Eins og áður hefur komið fram hafa ráðamenn í Mosvku neitað því að hafa komið að sprengjunni. Þeir segja ásakanirnar fáránlegar og ítreka að sprengingin hafi hingað til talin hafa verið slys. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Rússlands segir að ríkið muni svara fyrir sig. „Við munum svara fyrir okkur með leiðum sem munu þvinga höfunda þessarar ögrunar til að skilja að fullu ábyrgð þeirra á því að rústa grunni eðlilegra samskipta á milli ríkja okkar,“ segir í yfirlýsingunni frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir einnig að ásakanirnar séu framhald af öðrum and-rússneskum aðgerðum Tékka og þær beri keim Bandaríkjamanna. Er því haldið fram að Tékkar séu að reyna að þóknast Bandaríkjunum með ásökununum. Bandaríkin og Evrópusambandið eiga í miklum deilum við Rússa um þessar mundir og hafa beitt ráðamenn í Rússlandi viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.
Tékkland Rússland Búlgaría Fréttaskýringar Mest lesið Seinni hálfleikur að hefjast eftir stutt hlé í nótt Innlent Pottur fyrrverandi þingmanns hvarf í óveðrinu Innlent Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Veður Hundruðum kvenfanga nauðgað og þær brenndar lifandi Erlent Braut húsaleigulög með litavalinu Innlent Bannar trans konum að taka þátt í kvennaíþróttum Erlent Ekkert eðlilegt við tillögur Bandaríkjaforseta Erlent Létu rauða viðvörun ekki stoppa sig Innlent Þúsundir yfirgefa Santorini vegna skjálfta Erlent Bent á rangan mann eftir að lýst var eftir meintum kynferðisbrotamanni Innlent Fleiri fréttir Irv Gotti er látinn Þúsundir yfirgefa Santorini vegna skjálfta Ekkert eðlilegt við tillögur Bandaríkjaforseta Bannar trans konum að taka þátt í kvennaíþróttum Hundruðum kvenfanga nauðgað og þær brenndar lifandi Nafngreina árásarmanninn í Örebro Rivíerutal Trumps megi kalla etníska hreinsun Þetta er vitað um árásarmanninn í Örebro Ummæli Trumps harðlega gagnrýnd víða um heim Hætta að taka við og dreifa smábögglum frá Kína Trump segir Bandaríkjamenn munu taka yfir og „eignast“ Gasa Ellefu létust í skotárásinni Segir engan vilja búa á Gasa „Versta fjöldaskotárás sem hefur verið gerð í okkar landi“ Kosningar í Grænlandi framundan Íslenskur skólastjóri meðal þeirra sem flúðu skotárásina Skotárás í sænskum skóla Vilja endurskoða dóm hjúkrunarfræðings vegna barnadauða Stoltenberg með óvænta endurkomu í norskum stjórnmálum Jafngildir það að eyða meðvitaðri gervigreind því að drepa dýr? El Salvador býðst til að taka við hættulegum glæpamönnum Kínverjar grípa til aðgerða mínútum eftir að nýir tollar taka gildi Blátt bann við erlendum fjárframlögum Tollahækkunum gegn Kanada líka frestað Starfsmenn DOGE tóku yfir USAID og læstu starfsmenn úti Hermenn halda að landamærum og Trump frestar tollum Sautján ára stúlka lést í hákarlaárás Hvað gengur Trump til með tollum? Skotmark sprengingar í Moskvu herforingi frá Austur-Úkraínu Einn látinn eftir sprengjutilræði í lúxusblokk í Moskvu Sjá meira