Útsending keppninnar hófst klukkan 19 og fulltrúar sextán landa stíga á stokk í kvöld í þessari röð: Litháen, Slóvenía, Rússland, Svíþjóð, Ástralía, Norður-Makedónía, Írland, Kýpur, Noregur, Króatía, Belgía, Ísrael, Rúmenía, Aserbaídsjan, Úkraína og Malta.
Hægt er að fylgjast með framvindu keppninnar í vaktinni á Vísi, sem nálgast má hér að neðan. Þar er hægt að nálgast allar praktískar upplýsingar um keppnina auk spaugilegrar lýsingar fréttamanns Vísis sem fylgist með öllu sem fram fer.
En að viðbrögðum netverja:
Kolbrún Birna segist aldrei sætta sig við það að Ástralir fái að taka þátt í Eurovision.
Mér er sama hvað þið segið ég mun ALDREI sætta mig við það að ÁSTRALÍA sé í EUROVISION?? #12stig
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) May 18, 2021
Þetta ástralska myndband var eitthvað cry for help dæmi. Hef áhyggjur af henni. #12stig pic.twitter.com/22V3NRfWty
— María Björk (@baragrin) May 18, 2021
Ástralía...Allt þetta pleður minir mig á Pál Óskar '97...og það er það eina sem mér líkar við þetta atriði... #12stig
— Anna Sigrún (@nurgiSannA) May 18, 2021
Felix saknar frelsisins.
Sit hér í sóttkvínni og skæli yfir Eurovision. Geggjuð útsending og sigur að koma þessu saman! Bráðum verður lífið eðlilegt aftur #openup @Eurovision @RUVEurovision #12stig pic.twitter.com/3s70VFx8BJ
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) May 18, 2021
Margir virðast sammála um það að framlag Svía í ár, lagið Voices í flutningi Tusse, líki til framlags þeirra síðustu ára.
Hvað segiði, var einhver bátasprenging í Svíþjóð með öllum öðrum keppendum sænsku undankeppninar? #12stig
— Rúnar Ólason (@runarola) May 18, 2021
Svíar senda þetta lag á hverju ári. Löööngu orðinn leiður á því.#12stig #Eurovision #swe
— Hafsteinn Óskar (@The_Mr_Me) May 18, 2021
Ég elska bókstaflega allt við þessa nýju útgáfu af Heroes #swe #12stig
— Steinunn (@SteinunnVigdis) May 18, 2021
Aðrir gera grín að nafni Tusse.
@gislimarteinn hefur aldrei sagt nafn eins flytjanda jafn oft í kynningu og þess sænska. Aldrei. #12stig
— Gunnar Freyr Steinsson (@gunnarfreyr75) May 18, 2021
Drekka ì hvert sinn sem GM segir Tusse #12STIG
— Dísa Andersen (@AndersenDisa) May 18, 2021
Búningar Rússa vekja athygli.
Ég veit ekki með ykkur en ég verð semi nervös þegar Rússar segjast ætla að "hrista ærlega upp í hlutunum".#12stig pic.twitter.com/MwOnYw2SqY
— Stefán Halldórsson (@Stebbi76) May 18, 2021
Nei vá 9. áratugurinn hringdi og vildi og fá ballöðuna sína tilbaka frá Norður Makedóníu #12stig
— Binna Breiðholt (@BrynhildurYrsa) May 18, 2021
Mamma: þetta er bara kasjúál júrópartí fyrir fjölskylduna, mjög afslappað. Náttföt, snakk og #12stig á ipadnum!
— Una Hildardóttir (@hildardottir) May 18, 2021
Ég: pic.twitter.com/kvlT8ruSnp
HVAR FÆ ÉG SVONA GLERAUGU???!!!!! #12stig pic.twitter.com/J6QyPSSM4q
— Özzi (@ornbolti) May 18, 2021
Fólk er ósátt með framlag Íra.
#12stig Írland á skilið aðra hungursneyð.
— Binni (@lordcaccioepepe) May 18, 2021
Írska söngkonan er stolin úr Nei eða já. #12stig pic.twitter.com/qSysewKiqP
— Gunnar Freyr Steinsson (@gunnarfreyr75) May 18, 2021
Írsk Frozen lag #12stig
— Sigurður ingi (@Ziggi92) May 18, 2021
Er Írska ríkissjónvarpið búið að rétta af hallareksturinn frá 10. áratugnum? #12stig
— Haukur Logi (@HaukurJo) May 18, 2021
Nikkie Tutorials, einn hollensku kynnanna, hefur vakið mikla lukku en hún er heimsþekkt fyrir YouTube-rásina sem hún heldur úti.
Sjá þessa gyðju @NikkieTutorials #12stig #Eurovision
— Inga, MSc. (@irg19) May 18, 2021
dýrka nikkie tutorials en mjög fyndið að heyra svona bandarískan hreim á euro sviðinu #12stig
— líba (@karogudmund) May 18, 2021
Lady gaga #Eurovision mætt á sviðið fyrir Kýpur! Alejandro vibe mikið! #12stig
— Ingibjörg (@ingibjorgol16) May 18, 2021
Sorry Noregur er bara ekki með þetta núna. Annars átti ég svona kápu á Duran tímabilinu #12stig
— thora gunnarsdottir (@skautastelpa2) May 18, 2021
13 ára Þórunn elskar þetta mjög heitt #12stig #nor
— Þórunn Jakobs (@torunnjakobs) May 18, 2021
Noregur be like #12stig pic.twitter.com/4vD3LfWhlS
— Svavar Örn (@serbinn) May 18, 2021
Þessi norski búningur hefði verið fullkominn á Will Ferell í Fire Saga #12stig
— Kristjana Ásbjörnsdóttir MPH&PhD (@kristjanahronn) May 18, 2021
Norður Makedónía, Slóvenía og Írland öll að gera heiðarlega atlögu að versta Eurovision lagi allra tíma! Spennan er í hámarki! Hver ætli sigri bardaga þeirra allra verstu? #EuroBjarni #12stig
— Euro Bjarni (@EuroBjarni) May 18, 2021
Netverjum finnst Sigga Beinteinsdóttir greinilega lík Geike Arnaert söngkonunni sem flytur lagið fyrir Belgíu.
Jæja Sigga Beinteins orðin föðurlandssvikari. Hvað næst? #12stig
— Una Hildardóttir (@hildardottir) May 18, 2021
Vissi ekki að Sigga Beinteins ætti Belgískan ættingja #12stig
— Minniháttar hlutir sem fara í taugarnar á mér (@Ergjadur) May 18, 2021
Rosalega margir söngvarar ekki að halda lagi í kvöld. 4 stig á Rúmeníu #12stig
— Daníel Freyr Jónsson (@FreyrDaniel) May 18, 2021
Ég vil að svona kristalsaxlapúðar komist í tízku ekki seinna en strax! #AZE #12stig #ESC2021
— Bimma (@geimryk) May 18, 2021
okei Azerbaijan going back to basics á góðan hátt minnir á bangers úr æsku Eurovision #12stig
— líba (@karogudmund) May 18, 2021
Úkraína fær mig til að vilja dansa svona #12stig https://t.co/KpPMX1vTRV
— SteinaMusic (@demekliuz) May 18, 2021