Hann er sagður hafa reynt að ræða við ISIS-liða en án árangurs. Þá er hann sagður hafa beint byssu sinni að sjálfum sér, eða sprengt sig í loft upp.
Tvennum sögum fer af örlögum Shekau. AFP fréttaveitan hefur eftir einum heimildarmanni sínum í Nígeríu að Shekau sé alvarlega særður eftir að hafa reynt að skjóta sig og öðrum að hann hann hafi reynt að sprengja sig í loft upp.
Aðrir miðlar hafa þó sagt frá því að Shekau hafi sprengt sig í loft og sé dáinn. Þeirra á meðal er nígeríski miðillinn HumAngle.
Vert er að taka fram að Shekau hefur þó nokkrum sinnum verið sagður dáinn á undanförnum árum.
AFP segir að félögum Shekau hafi tekist að koma honum til hjálpar svo hann hafi ekki verið handsamaður af ISIS-liðum.
Í rúman áratug hafa íslamistar háð blóðuga uppreisn í norðausturhluta Nígeríu. Boko Haram byrjaði árásir sínar árið 2009 og hafa minnst fjörutíu þúsund manns fallið í árásum samtakanna og átökum sem tengjast þeim. Tvær milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín.
Sjá einnig: Liðsmenn Boko Haram grunaðir um hrottaleg morð á tugum bænda
Ofbeldið hefur einnig teygt anga sína til Níger, Tjad og Kamerún.
Það voru Shekau og vígamenn hans sem rændu fleiri en þrjú hundruð skólastúlkum í Chibok í Nígeríu árið 2014. Árið 2015 lýsti Shekau svo hollustu við Íslamska ríkið í Sýrlandi.
Árið 2016 komu upp deilur innan Boko Haram og hryðjuverkasamtökin tvístruðust í Boko Haram og ISWAP. Samtökin hafa síðan barist sín á milli og við her Nígeríu. ISWAP hefur þó vaxið ásmegin á undanförnum árum og náð tökum á stærri svæðum í Nígeríu og gert umfangsmeiri árásir en áður.