Rodríguez hetjan gegn bitlausum Úrúgvæum Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júní 2021 10:01 Guido Rodriguez, miðjumaður Real Betis, skallaði fyrirgjöf Messis í stöng og inn. Getty Images/Gustavo Pagano Argentína vann 1-0 sigur á Úrúgvæ í stórleik næturinnar í Suður-Ameríkukeppninni, Copa América. Tveir leikir voru á dagskrá í gærkvöld.
Úrúgvæ var að spila sinn fyrsta leik á mótinu í fimm liða riðlinum en Argentína hafði gert 1-1 jafntefli við Síle á mánudaginn var. Argentínumenn mættu umtalsvert ákveðnari til leiks þar sem þeir unnu Úrúgvæana iðulega í baráttunni. Þeir náðu að færa yfirburði sína í nyt þegar Guido Rodriguez, miðjumaður Real Betis á Spáni, skallaði fyrirgjöf Lionels Messi í stöng og inn eftir 13 mínútna leik. Þrátt fyrir að hafa bæði Edinson Cavani og Luis Suárez í framlínu sinni gekk þeim úrúgvæsku bölvanlega að svara fyrir mark þeirra argentínsku. Úrúgvæar voru meira með boltann en tókst varla að skapa sér færi það sem eftir lifði leiks. Raunar náðu þeir ekki einu einasta skoti á markið allan leikinn. Argentína vann 1-0 sigur og er liðið þá með fjögur stig, líkt og Síle, á toppi riðilsins. Síle vann fyrr í gærkvöld 1-0 sigur á Bólivíu þar sem Ben Brereton, leikmaður Blackburn Rovers og fyrsti leikmaður í sögu Copa America sem fæddur er í Stoke-on-Trent, skoraði sigurmark þeirra sílesku. Úrúgvæ mætir liði Síle í næsta leik sínum á mánudaginn og þurfa að fara rækilega yfir sinn sóknarleik eftir daufa frammistöðu. Raunar hefur Úrúgvæ nú leikið fjóra keppnisleiki í röð án þess að skora, síðustu tveir leikir í undankeppni HM, gegn Paragvæ og Venesúela, fóru báðir 0-0 og á undan því töpuðu þeir úrúgvæsku 0-2 fyrir Brasilíu.
Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport HM í bakgarðshlaupum: Mari hleypur með rifinn liðþófa | „Veit ekki hvað bíður mín“ Sport Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn Íslensku stelpurnar Evrópumeistarar í fjórða sinn Sport Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Fótbolti Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Dagskráin í dag: Landa Víkingar næstum því titlinum? Sport Körfuboltakvöld um Kane: „Finnst hann ekki hafa gert neitt hrikalegt“ Körfubolti Sjáðu stikluna fyrir Kanann: „Þegar hann sagði Ísland hugsaði ég bara um ísbirni“ Sport Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Enski boltinn Fleiri fréttir Ísak reiddist dómaranum og lagði þá bara upp mark í staðinn Í beinni: Tottenham - West Ham | Spurs þarf að svara fyrir ófarirnar síðast Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Fanney seld fyrir upphæð sem „ekki hefur sést“ og Tinna kemur í staðinn Jón Dagur út í hálfleik en upp um þrjú sæti Sara öflug og komst áfram í bikarnum Mainoo frá í nokkrar vikur Fanney sögð á leið til Svíþjóðar Nýir þjálfarar drepi alla sköpun Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Tvær breytingar á Bandaríkjahópnum Valdi ekki bestu fótboltakonu heims í landsliðið Messi: Hamingjan skiptir mig meira máli en að spila á HM 2026 Fótboltinn þurfi að njóta vafans hjá Val: „Er mjólkurkýr félagsins“ Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Börkur hló spurður um framboð: „Talandi um að fara úr öskunni í eldinn“ Sveindís og Amanda áttu strembið Meistaradeildarkvöld Ómar Björn áfram í Bestu deildinni Aðeins tvöfaldur espressó gegn Íslandi Myndasyrpa: Fyrsta skóflustungan tekin og Ásmundur á traktornum Pogba segir að danssagan sé lygi Færeyingar ráku þjálfara sinn Fyrsta skóflustungan tekin á Laugardalsvelli í dag Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Paul Pogba: Reiðin mun hjálpa mér Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Sjá meira