Messi fór á kostum er hann varð leikjahæsti leikmaður í sögu Argentínu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. júní 2021 09:01 Það var gaman hjá Messi í nótt. EPA-EFE/Raul Martinez Það eru fá met sem Lionel Messi á eftir að slá en hann náði þó einu er Argentína lagði Bólivíu 4-1 í Suður-Ameríkukeppninni. Hann lék þá sinn 148. landsleik á ferlinum og varð þar með leikjahæsti landsliðsmaður Argentínu frá upphafi.
Ekki nóg með það heldur skoraði hinn 34 ára gamli Messi tvö af fjórum mörkum Argentínu í leiknum ásamt því að leggja upp það fyrsta. Það skoraði Papu Gomez strax á sjöttu mínútu leiksins. Lionel #Messi, en lo más alto: el capitán argentino es el jugador con más presencias en la Selección @Argentina ¡Vamos, Leo! pic.twitter.com/aDTXnbwtsG— Selección Argentina (@Argentina) June 29, 2021 Messi kom Argentínu í 2-0 eftir rúman hálftíma með marki úr vítaspyrnu og gerði svo í raun út um leikinn skömmu fyrir leikhlé þegar Sergio Agüero lagði upp á landa sinn. Eitthvað sem við gætum séð meira af hjá Barcelona í vetur fari svo að Messi skrifi undir nýjan samning. Erwin Saavedra minnkaði muninn fyrir heimamenn þegar klukkustund var liðin af leiknum en Lautaro Martinez gerði endanlega út um leikinn fimm mínútum síðar. Lokatölur 4-1 Argentínu í vil sem mætir nú Ekvador í 8-liða úrslitum. Hinn leikur næturinnar var viðureign Úrúgvæ og Paragvæ. Fór það svo að heimamenn höfðu betur 1-0 þökk sé marki Edinson Cavani úr vítaspyrnu eftir rúmar tuttugu mínútur. Úrúgvæ er einnig komið í 8-liða úrslit og mætir þar Kólumbíu.
Fótbolti Copa América Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira