Sport

Dagskráin í dag: Golf og NBA

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Giannis Antetokounmpo og félagar í Milwaukee Bucks taka á móti Phoenix Suns í fjórða leik liðanna í úrslitum NBA deildarinnar.
Giannis Antetokounmpo og félagar í Milwaukee Bucks taka á móti Phoenix Suns í fjórða leik liðanna í úrslitum NBA deildarinnar. Justin Casterline/Getty Images

Það er nokkuð rólegur dagur á sportrásum okkar í dag. Spilað verður á LPGA mótaröðinni í golfi og úrslitaeinvígi Milwaukee Bucks og Phoenix Suns heldur áfram.

Á Stöð 2 Golf verður bein útsending frá Dow Great Lakes Bay Invitational og hefst hún klukkan 19:00, en það er hluti af LPGA mótaröðinni.

Milwaukee Bucks tekur á móti Phoenix Suns í úrslitum NBA deildarinnar klukkan 01:00 eftir miðnætti. Þetta er fjórði leikur úrslitaeinvígisins og það eru Suns sem leiða 2-1.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar næstu daga má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×