Lífið

Guð­mundur Felix notar nýju hendurnar til að bera sólar­vörn á eigin­konuna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Guðmundur Felix fékk nýju handleggina.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Guðmundur Felix fékk nýju handleggina. Skjáskot

„Hugmyndin er að nota hendurnar eins mikið og hægt er til að örva taugarnar til að vaxa í fingurna,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson í myndbandi sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Þar má sjá hann á sólarströnd í Frakklandi bera sólarvörn á bak eiginkonu sinnar, Sylwiu Nowakowsku Gretarsson.

Sjá má í myndbandinu að hann er farinn að geta hreyft handleggina töluvert þó fingurnir og hendurnar séu enn að jafna sig. „Það er ekki eins og þeir séu alveg gagnslausir,“ segir Guðmundur Felix og glottir.

„Ég myndi ekki gera þetta með krókinn.“

Hann skrifar við færsluna að hann sé loks kominn í frí eftir sex mánuði á spítalanum og noti hverja dauða stund til að örva hendurnar. 

Nú eru tæpir átta mánuðir liðnir síðan handleggir voru græddir á Guðmund Felix, 23 árum eftir að hann missti sína í háraforkuslysi hér á landi, þá aðeins 26 ára gamall. 

Guðmundur hefur reglulega deilt uppfærslum á Facebook þar sem sjá má að handleggirnir verða sterkari með hverjum deginum. Fyrir rétt rúmum mánuði síðan deildi hann til dæmis myndbandi af sér í sundlaug þar sem hann sást hreyfa annan handlegginn.


Tengdar fréttir

Guðmundur Felix léttur í lauginni

Guðmundur Felix Grétarsson deildi í gærkvöldi myndbandi af sér í sundlaug þar sem hann sést hreyfa annan handlegginn.

Guð­­mundur Felix hnyklar vöðvann í fyrsta skipti

Guð­mundur Felix Grétars­son hreyfði í dag upp­hand­leggs­vöðva sinn í fyrsta skipti eftir að hann missti hendurnar árið 1998. Tauga­endar í hand­leggjunum sem hann fékk grædda á sig í byrjun árs hafa vaxið mun hraðar en gert var ráð fyrir í fyrstu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.