Fótbolti

PSG búið að hafa samband við Messi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi gæti verið á leið til Frakklands.
Lionel Messi gæti verið á leið til Frakklands. getty/Siu Wu

Paris Saint-Germain hefur sett sig í samband við Lionel Messi og vill fá Argentínumanninn til félagsins.

Meðal þeirra sem greina frá þessu er fótboltavéfréttin Fabrizio Romano. Hann segir að PSG hafi strax spurst fyrir um mál Messi eftir að ljóst var að hann yrði ekki áfram hjá Barcelona.

Í gær greindi Barcelona frá því að Messi myndi yfirgefa félagið sem hann hefur leikið með alla tíð.

Messi vildi fara frá Barcelona síðasta sumar en ekkert varð af því. Fyrir nokkrum vikum bárust svo fréttir af því að Argentínumaðurinn myndi skrifa undir fimm ára samning við Barcelona en taka á sig fimmtíu prósent launalækkun. En nú virðist Messi á förum frá Barcelona.

Ef Messi færi til PSG myndi hann hitta þar fyrir Brasilíumanninn Neymar sem hann lék með hjá Barcelona.

Auk PSG hefur Messi aðallega verið orðaður við Englandsmeistara Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×