Skoðun

Hjarðónæmi og sóttvarnir

Ari Tryggvason skrifar

Skjótt skipast veður í lofti. Nú er allt í einu nauðsynlegt að stór hluti þjóðarinnar smitist til að ná nauðsynlegu hjarðónæmi þrátt fyrir að þorri hennar sé fullsprautaður. Þetta hafa þeir báðir sagt, Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Sá fyrri í Sjónvarpsfréttum laugardagsins og sá síðari í Sprengisandi Bylgjunnar, sunnudagsmorgun.

Þetta væru svo sannarlega ánægjuleg tíðindi og góð sinnaskipti frá margbreytilegum sóttvarnaraðgerðum, nema að það gæti verið fullseint.

Faraldsfræðin

Ég er hvorki læknir né faraldsfræðingur en ég get hins vegar leitað í smiðju þeirra. Knut Wittkowski, doktor í tölvunarfræði og faraldsfræðingur hefur gagnrýnt þær aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna faraldursins víðast hvar. Faraldsfræðin er jú sú fræði er tekur m.a. á dreifingu smitsjúkdóma meðal almennings. Ekki er hægt að stöðva faraldur, einungis er hægt að stýra honum. Þar sem Covid-19 herjar síst á ungt og heilbrigt fólk, hefði út frá hefðbundnum fræðum faraldsfræðinnar, átt að haga öllum sóttvörnum með tilliti til þess. Það hefði átti að verja þau gömlu og veiku en vera ekki með neinar varnir meðal hinna ungu og heilbrigðu. Einhverra hluta vegna flöskuðu menn algerlega á síðara atriðinu. Samkvæmt Wittowski stendur valið á milli þess að faraldurinn dreifist á meðal hinna ungu og heilbrigðu og valda fáum dauðsföllum eða á meðal hinna gömlu og veiku og valda mörgum dauðsföllum.

Við getum ekki sigrað náttúruna, segir Wittkowski. Við værum komin með hjarðónæmi ef við hefðum ekki beitt sóttvarnaraðgerðum og hægt þannig á faraldrinum og framlengt. Þannig gert öflugri afbrigðum auðveldara um vik. Allar þær aðgerðir sem gripið hefur verið til, margvíslegar takmarkanir, fletja út kúrfuna og seinka því að við náum hjarðónæmi og auka líkurnar á stökkbreytingu veirunnar.

Hvernig við höfum tekið á viðlíka faröldrum áður, skynsamlega og rökrétt og engin ástæða hefur verið til að gera það öðruvísi nú. Ef vilji er til þess að gefa bóluefni svo flýta megi myndun hjarðónæmis en á sama tíma skylda fólk til að vera með grímur samhliða lokunum sem hægir á myndun hjarðónæmis, er það líkt og við stígum á eldsneytisgjöfina og bremsurnar samtímis.

Sóttvarnalæknir reyndi í Sjónvarpsfréttum sunnudagsins að draga í land. Engu að síður stendur það sem Kári sagði. Ég spyr því, hvers vegna leyfðu sóttvarnaryfirvöld ekki faraldrinum að dreifast hindrunarlaust í upphafi, meðal hinna ungu og hraustu og vernda hina, til hagsbóta fyrir alla landsmenn? Með þessu móti væri faraldurinn löngu yfirstaðinn og við gætum lifað frjáls og eðlilegu lífi.

Höfundur er kominn á eftirlaun og virkur í kóviðspyrnunni.




Skoðun

Sjá meira


×