Fótbolti

Hvernig mun Pochettino stilla upp ofur­liði PSG?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mauricio Pochettino er þegar farinn að velta því fyrir sér hvað besta byrjunarlið PSG gæti verið.
Mauricio Pochettino er þegar farinn að velta því fyrir sér hvað besta byrjunarlið PSG gæti verið. vísir/getty

Lionel Messi er orðinn leikmaður París-Saint Germain. Samningurinn er undirritaður og maðurinn sem hefur verið ímynd Barcelona, og ímynd Katalóníu í hartnær tvo áratugi er mættur til Parísar að spila fyrir olíuveldið PSG.

Sumarglugginn hjá Parísarliðinu hefur verið með hreint út sagt ólíkindum. 

  • Gianluigi Donnarumma, besti leikmaður Evrópumótsins, kom á frjálsri sölu frá AC Milan.
  • Hinn titlaóði Sergio Ramos kom á frjálsri sölu frá Real Madrid.
  • Gini Wijnaldum kom á frjálsri sölu frá Liverpool.
  • Achraf Hakimi, einn mest spennandi bakvörður heims, kom fyrir 60 milljónir evra (gæti hækkað upp í rúma 71 milljón) frá Ítalíumeisturum Inter Milan.
  • Að lokum kom svo einn - ef ekki sá - besti knattspyrnumaður sögunnar, Lionel Messi, á frjálsri sölu frá Barcelona.

Ekki var nú leikmannahópur PSG eitthvað slor fyrir. Það er því eðlilegt að velta fyrir sér hvernig Mauricio Pochettino, þjálfari liðsins, ætlar sér að stilla upp í vetur og hvernig ætlar hann að fara að því að halda öllum þessum prímadonnum ánægðum.

Auðvelda leiðin fyrir Poch er að stilla einfaldlega upp 11 bestu leikmönnunum liðsins og vona það besta. Að stilla upp bestu 11 leikmönnunum þýðir hins vegar ekki alltaf að besta liðið sé inn á vellinum.

Samkvæmt The Athletic eru forráðamenn félagsins tilbúnir að selja allt að tíu leikmenn svo ef til vill þarf Poch ekki að friða of margar pirraðar prímadonnurnar sem fá ekki mínútur í upphafi móts. 

Það er hins vegar deginum ljósara að pressan á að vinna Meistaradeild Evrópu var að aukast til muna. Eitthvað sem hvorki PSG né Poch hefur tekist til þessa á ferlinum.

PSG vann franska bikarinn í fyrra. Í ár á að vinna alla titla sem eru í boði.John Berry/Getty Images

Pochettino hefur stillt upp í tvö mismunandi leikkerfi til þessa á leiktíðinni. Í 0-1 tapinu gegn Lille í hinum árlega leik Meistarar Meistaranna stillti hann liðinu upp í 4-3-3 leikkerfi. Í næsta leik, naumum 2-1 sigri á Troyes í fyrsta leik í deild, var stillt upp í 4-3-1-2 leikkerfi. 

Það er óljóst hvernig Poch stillir upp með allar stórstjörnur sínar og eflaust má þræta fram og til baka um hver uppstillingin sé en hér að neðan má sjá hvaða 11 leikmenn eru líklegastir til að mynda byrjunarlið PSG á komandi vikum.

Líklegt byrjunarlið PSG í vetur [4-3-3]

Markvörður

Donnarumma verður í markinu. Það er engin spurning. Hann er að mæta sem Evrópumeistari og besti maður mótsins. Þá er hann aðeins 22 ára gamall og mun eflaust eiga að verja mark PSG næsta áratuginn eða svo. Hinn 34 ára gamli Keylor Navas þarf því að sætta sig við að verma tréverkið.

Varnarlína

Achraf Hakimi verður í stöðu hægri bakvarðar. Frábær leikmaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað með Real Madrid, Borussia Dortmund og Inter Milan sem og PSG. Hann byrjar með látum en Hakimi skoraði fyrra mark liðsins gegn Troyes. 

Í stöðu vinstri bakvarðar verður Juan Bernat líkt og á síðustu leiktíð. Í miðverði verða svo þeir Sergio Ramos og Presnel Kimpembe, varafyrirliði. 

Á bekknum má svo finna fjöldan allan af leikmönnum sem vilja eflaust spila meira en nokkrar mínútur hér og þar. Colin Dagba getur leyst Hakimi af hólmi, sömu sögu er að segja af Layvin Kurzawa og Abdou Diallo vinstra megin.

Djúpur á miðju verður þá að öllum líkindum Marquinhos, fyrirliði liðsins, en hann getur þó alltaf dottið niður í miðvörð ef þess þarf. Thilo Kehrer verður svo fjórði valmöguleiki í miðvörðinn.

Miðjumenn

Marquinhos verður á miðjunni og þar fyrir framan verða Evrópumeistarinn Marco Veratti og Georginio Wijnaldum. 

Leikmenn á borð við Idrissa Gana Gueye, Ander Herrera, Danilo Pereira og Leandro Paredes verða að sætta sig við að verma varamannabekkinn eða róa á önnur mið.

Framlína

Það er ljóst að Neymar, Lionel Messi og Kylian Mbappé verða fremstu þrír. Í hvaða stöðum nákvæmlega verður einfaldlega að koma í ljós.

Ef Pochettino vill beinskeyttari sóknarleik getur hann bætt Ángel Di María við en sá tryggði Argentínu sigur í Suður-Ameríkubikarnum í sumar og hefur reynst PSG töluvert betur en fyrrum vinnuveitanda sínum.

Ef þessir þrír eru ekki að standa sig þá er 60 milljón evra framherjinn Mauro Icardi á bekknum sem og spænski landsliðsmaðurinn Pablo Sarabia

Líklegt byrjunarlið PSG.

Ef þetta er ekki nóg þá er talið að félagið hafi augastað á Paul Pogba eða hinum unga og efnilega Eduardo Camavinga hjá Rennes.


Tengdar fréttir

Messi orðinn leikmaður Paris Saint-Germain

Argentíski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi er orðinn leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi. Messi skrifaði undir tveggja ára samning fyrr í kvöld.

Messi mun spila í treyju númer 30 hjá PSG

Lionel Messi gekk í raðir franska stórliðsins París-Saint Germain eins og hefur eflaust ekki farið framhjá einu einasta mannsbarni. Messi hefur feril sinn með PSG með sama númer á bakinu og hann hóf ferilinn hjá Barcelona á sínum tíma, 30.

Hefði ekki mátt spila launa­laust með Barcelona

Lionel Messi hefur yfirgefið spænska stórveldið Barcelona og mun að öllum líkindum semja við franska knattspyrnufélagið París-Saint Germain síðar í dag. Vegna regluverks La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar, gátu Börsungar ekki samið við Argentínumanninn á nýjan leik þar sem hann hefði ekki mátt spila launalaust með félaginu.

Messi kveður Barcelona með tárum

Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta leik fyrir katalónska fótboltaliðið Barcelona. Hann er á blaðamannafundi í beinni frá Nývangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×