Vitað um einn Íslending enn í Afganistan Atli Ísleifsson skrifar 16. ágúst 2021 12:41 Vestræn ríki hafa síðustu daga reynt að forða borgurum sínum frá landinu eftir að hver borgin á fætur annarri hefur fallið í hendur talibana. AP Utanríkisráðuneytið þekkir til eins Íslendings sem sé enn staddur í Afganistan. Vonir séu bundnar við að hann komist fljótlega út landi.
Þetta staðfestir Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við Vísi. Sveinn segir að um sé að ræða starfsmann NSPA (e. NATO Support and Procurement Agency), einnar undirstofnunar Atlantshafsbandalagsins NATO. Sveinn segir að Íslendingurinn sé staddur í Kabúl. „Við erum í góðum samskiptum við hann og við fylgjumst vel með. Sem starfsmaður NATO er hann talinn öruggur.“ Vestræn ríki hafa síðustu daga reynt að forða borgurum sínum frá landinu eftir að hver borgin á fætur annarri hefur fallið í hendur talibana. Talibanar tóku höfuðborgina Kabúl í gær fljótlega eftir að Ashraf Ghani, forseti landsins, flúði land. Íslömsku öfgamennirnir hafa náð nær öllum völdum í landinu á innan við viku, á sama tíma og bandarískt og alþjóðlegt herlið hefur verið að kalla lið sitt frá landinu. Sveinn segir að fyrir um tveimur árum hafi alla jafna tveir til þrír Íslendingar í Afganistan sem störfuðu á vegum NATO.
Afganistan Íslendingar erlendis NATO Mest lesið Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar fylgjast með Innlent Klámáhorf barna enn að dragast saman Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Sjá meira