Jón Dagur skoraði þegar AGF fór áfram í danska bikarnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. september 2021 17:51 Jón Dagur Þorsteinsson kom AGF á bragðið í dag. Jan Christensen / FrontzoneSport via Getty Images Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í AGF heimsóttu C-deildarliðið BK Frem í 32-liða úrslitum danska bikarsins í dag. Jón Dagur skoraði fyrsta mark AGF þegar að liðið vann öruggan 3-0 sigur. Þá var Ágúst Eðvald Hlynsson í byrjunarliði Horsens sem sló Silkeborg úr leik í Íslendingaslag með 3-2 sigri.
Jón Dagur kom AGF yfir á 19. mínútu leiksins gegn BK Frem. Aðeins þremur mínútum seinna var staðan orðin 3-0 eftir mörk frá Dawid Kurminowski og Thomas Kristensen. Þannig var staðan þegar að flautað var til hálfleiks, og hún breyttist ekki heldur í seinni hálfleik. AGF vann því nokkuð þægilegan 3-0 sigur og eru komnir í 16-liða úrslit. Ögn meiri spenna var í Íslendingaslag Horsens og Silkeborg. Eins og áður segir var Ágúst Eðvald Hlynsson í byrjunarliði Horsens, en Aron Sigurðarson kom inn á sem varamaður þegar að tuttugu mínútur voru til leiksloka. Stefán Teitur Þórðarson kom inn á sem varamaður fyrir Silkeborg í hálfleik. Sebastian Jorgensen kom gestunum í Silkeborg yfir eftir aðeins 14 mínútna leik, en mörk frá Jannik Pohl, Lirim Qamili og Alexander Ludwig á átta mínútna kafla sáu til þess að heimamenn í Horsens fóru með 3-1 forystu í hléið. Soren Tengstedt minnkaði muninn í 3-2 á 68. mínútu fyrir Silkeborg, en nær komust gestirnir ekki. Það voru því Ágúst Eðvald og Aron, ásamt liðsfélögum sínum í Horsens, sem að fögnuðu 3-2 sigri og fara í 16-liða úrslitin.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Enski boltinn Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti „Auðvitað söknum við okkar besta og reynslumesta manns“ Körfubolti „Fannst þeir sýna meiri hörku, sem ég átti erfitt með“ Körfubolti Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Handbolti Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Handbolti Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ Körfubolti Fleiri fréttir Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Danir vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Kósovó áfrýjar og Svíar bíða spenntir: „Barátta gegn rasisma“ Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Leið Íslands á HM skýrari: Í þriðja flokki og fá þrjá mótherja UEFA viðurkennir mistök í myndbandsdómgælu í Þjóðadeildinni Systur sömdu á sama tíma Amanda lagði upp mark í Meistaradeildinni Svíar tapa á því að Rúmenum var dæmdur sigur á móti Kósóvó Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti