Ingvar mætti í hlaðvarpið Þungavigtin og ræddi þar við Kristján Óla Sigurðsson um magnað sumar Víkinga sem og ferilinn til þessa. Þar fór Ingvar yfir þennan örlagaríka dag þar sem pendúllinn sveiflaðist Víkingum í hag í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
„Það vissu líklega allir sem fylgjast með fótbolta að hann er búinn að skjóta í þetta horn, búið að taka þetta fyrir í Pepsi Max Mörkunum og sýna þetta á korti þar. Svo var ég búinn að heyra í einhverju hlaðvarpi að Kjartan Henry (Finnbogason) væri orðin vítaskytta, hann sagði það allavega sjálfur. Ég var líka búinn að rýna í hann og skoða það því ég bjóst við að hann myndi taka vítið,“ sagði Ingvar í spjalli sínu við Kristján Óla.
„Ég man að ég og Kári (Árnason) áttum þessa umræðu þar sem ég var að velta fyrir mér ef hann myndi taka aftur hvort hann myndi virkilega taka aftur í sama hornið. Ég hafði einhverja smá tilfinningu fyrir því að KR fengi víti í þessum leik. Svo í aðdragandanum, þetta var mikill hasar og það leið langur tími, þá labbaði ég upp að Pálma og tók svona utan um bringuna á honum og spurði hvort hann ætlaði að taka í sama hornið.“
„Hann svaraði eiginlega engu og var bara eitthvað að hugsa. Ég man að ég var eiginlega búinn að ákveða að fara í hitt hornið því ég trúði því ekki að hann myndi virkilega skjóta í sama hornið. Svo rétt áður þá hugsaði ég að ég gæti aldrei fyrirgefið mér ef ég fer til vinstri og hann skýtur til hægri og við töpum titlinum á þessu,“ sagði Ingvar að endingu.
Bút úr viðtalinu má heyra í spilaranum hér að neðan. Það má nálgast allan þáttinn af Þungavigtinni á Spotify, Apple Podcasts og Tal.is/vigtin.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.