Danir einum leik frá því að fara með fullt hús stiga í gegnum riðilinn

Danir eru í ansi góðum málum í F-riðli.
Danir eru í ansi góðum málum í F-riðli. Jan Christensen / FrontzoneSport via Getty Images

Danmörk vann í kvöld öruggan 3-1 sigur gegn Færeyjum í níundu og næst seinustu umferð F-riðils í undankeppni HM 2022. Danir hafa unnið alla leiki sína í riðlinum, en fengu á sig sitt fyrsta mark í kvöld.

Danir byrjuðu leikinn betur og Andreas Skov Olsen braut ísinn fyrir heimamenn á 18. mínútu. Hvorugu liðinu tókst að bæta við öðru marki í fyrri hálfleik og því var staðan 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Jacob Bruun Larsen kom inn á sem varamaður á 57. mínútu fyrir Dani og hann bætti öðru marki liðsins við sex mínútum síðar.

Klaemint Olsen minnkaði muninn fyrir Færeyjinga á 89. mínútu, og varð þar með sá fyrsti til að skora gegn Dönum í þessari undankeppni.

Joakim Maehle tryggði svo 3-1 sigur Danmerkur í uppnótartíma, og liðið er nú með markatöluna 30-1 eftir níu leiki, og 27 stig á toppi riðilsins.

Færeyjingar eru hins vegar í neðsta sæti riðilsins með fjögur stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira