Viðskipti innlent

Tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra Reon

Atli Ísleifsson skrifar
Rósa Dögg Ægisdóttir.
Rósa Dögg Ægisdóttir. Aðsend

Rósa Dögg Ægisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarhússins Reon ehf. Elvar Örn Þormar, fráfarandi framkvæmdastjóri og einn stofnenda Reon mun í framhaldinu leiða fjárfestingastarfsemi fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu, en Reon var stofnað 2011 og sérhæfir sig í þróun stafrænna lausna og nýsköpun. Hjá fyrirtækinu starfa nú 25 sérfræðingar með þverfaglega þekkingu á hugbúnaði, tækni- og viðskiptaþróun.

„Rósa Dögg hefur síðastliðin fjögur ár starfað sem þróunarstjóri Reon og setið í framkvæmdastjórn félagsins undanfarin þrjú ár. Í starfi sínu hefur hún stýrt stafrænum verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins, meðal annars fyrir Krónuna, N1, ELKO og Vörð auk opinberra stofnana. Hún hefur sömuleiðis sinnt vörustýringu fyrir eigin vörur Reon, til dæmis snjallforritið Team Health og áskriftarkerfið Vefáskrift. Þá situr hún í stjórn Reon Ventures sem fjárfestir í og aðstoðar sprotafyrirtæki á hugmyndastigi. Hún mun í nýju starfi leiða stefnumótun fyrirtækisins, skerpa á framtíðarsýn þess og fylgja nýjum og eldri viðskiptavinum í ferlum Reon.

Rósa Dögg er með B.S. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×