Hangikjötið má ekki klikka Kjarnafæði Norðlenska 9. desember 2021 08:51 Það ættu allir að geta fundið hangikjöt við sitt hæfi undir vörumerkjum Kjarnafæðis Norðlenska. Hangikjötið frá Kjarnafæði Norðlenska er fyrsta flokks hátíðarmatur.
Jólin nálgast óðfluga og þá er hangikjötið mörgum ofarlega í huga. Matvöruverslanir landsins bjóða ágætt úrval af hangikjöti, en þegar kemur að mat sem flestir borða aðeins einu sinni á ári er vissara að vanda valið. Andrés Vilhjálmsson, markaðsstjóri Kjarnafæðis Norðlenska, fyrir framan kjötvinnslu fyrirtækisins á Svalbarðseyri. „Það er algjör synd að vera búinn að hafa mikið fyrir jólaboðinu, kannski með fullt af fólki í mat, en lenda þá í því að sjálft kjötið sé ekki nógu gott,“ segir Andrés Vilhjálmsson, markaðsstjóri hjá Kjarnafæði Norðlenska. „Strangt gæðaeftirlit er með allri okkar framleiðslu sem tryggir neytendum fyrsta flokks hangikjöt á hátíðarborðið.“ Húsavíkurhangikjöt Taðreykta hangikjötið frá Norðlenska er verkað að þingeyskum sið, sem tryggir afar gott reykbragð. Kjötið er tiltölulega lítið saltað í samanburði við flestar aðrar tegundir á markaðnum, sem leyfir reyknum að njóta sín enn frekar. Það tekur um tvær vikur að framleiða Húsavíkurhangikjöt og er framleiðslunni stýrt af margverðlaunuðu fagfólki. Húsavíkurhangikjötið hefur hvað eftir annað verið valið eitt það besta af helstu matgæðingum þjóðarinnar. „Strangt gæðaeftirlit er með allri okkar framleiðslu, sem tryggir neytendum fyrsta flokks hangikjöt á hátíðarborðið.“ KEA hangikjöt Taðreykt og verkað samkvæmt aldagömlum eyfirskum hefðum, sem tryggir bragðmikið kjöt með góðu reykbragði. Það hefur langt geymsluþol og óhætt er að bragða á því hráu. KEA hangikjötið hefur verið söluhæsta hangikjötið um árabil og ítrekað verið valið eitt það besta í bragðprófunum. Fjallahangikjöt/Sambandshangikjöt Fjallahangikjöt og Sambandshangikjöt eru vörur sem eiga sér langa sögu og hafa ávallt komið vel út úr bragðprófunum, enda taðreyktar með gamalreyndum aðferðum. Tíðir og góðir gestir á borðum Íslendinga. Kofareykt hangikjöt Kofareykta hangikjötið frá Kjarnafæði hefur hlotið mikið lof frá dómurum í bragðprófunum og unnið til fjölda verðlauna. Það hefur verið eitt mest selda hangikjöt landsins svo árum skiptir. Húskarlahangikjöt Húskarlahangikjötið frá Kjarnafæði er tvíreykt og hefur notið síaukinna vinsælda undanfarin ár. Að lokum má minnast sérstaklega á Húskarlahangikjötið frá Kjarnafæði, sem notið hefur síaukinna vinsælda síðustu ár. Kjötið er látið hanga við sérstakar aðstæður, þar sem kjötið þornar að einhverju leiti, sem gefur því einkennandi áferð og bragð. Húskarlahangikjötið er tvíreykt og hefur því töluvert meira reykbragð en hefðbundið hangikjöt. Vinsælast er að skera kjötið í þunnar sneiðar og borða hrátt, eitt og sér, eða á brauðsnittum. Einnig er gott að sjóða kjötið og neyta þess á hefðbundinn hátt. Hangikjöt við allra hæfi Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi undir vörumerkjum Kjarnafæðis Norðlenska. „Við viljum hafa breidd í okkar hangikjötsúrvali, því smekkur fólks er misjafn, en neytendur eiga þó allir það sameiginlegt að vera umhugað um gæði,“ segir Andrés. „Gæðakröfur íslenskra neytenda aukast ár frá ári og við finnum að þetta skiptir fólk miklu máli. Við leggjum allan okkar metnað í að bjóða neytendum vandaðar vörur sem standa undir væntingum. Bragðprófanir og sölutölur sýna okkur að það hefur tekist.“ Eldunarleiðbeiningar: Sjóðið rólega í u.þ.b. 60 mínútur. Nákvæmur eldunartími fer eftir stærð stykkisins. Slökkvið á hellunni og leyfið kjötinu að standa í soðinu í að minnsta kosti klukkustund. Berið fram eða kælið. Brúskettur með tvíreyktu hangikjöti og mangósalsa Girnilegar og gómsætar brúskettur með Húskarlahangikjöti frá Kjarnafæði. Uppskrift: Berglind Guðmundsdóttir (Gulur rauður, grænn og salt). 1 pakki húskarlahangikjöt frá Kjarnafæði klettasalat mangó rauður chilipipar, ferskur vorlaukur sjávarsalt ólífuolía hvítlaukssósa baguette Skerið brauðið í sneiðar og dreypið olíu yfir það. Ristið í 180°c heitum ofni í 5-10 mínútur. Takið úr ofni og kælið lítillega. Skerið mangó, chilipipar og vorlauk niður í smáa bita og látið saman í skál. Blandið 1 msk. af ólífuolíu saman við og kryddið með sjávarsalti. Blandið vel saman. Smyrjið brauðið með hvítlaukssósu og látið vel af klettasalati yfir það, ásamt einni sneið af Húskarlahangikjöti. Toppið með 1 tsk. af mangósalsa. Berið fram með hvítlaukssósu. Kjarnafæði lét framleiða fallegan, gamaldags postulínsdisk fyrir jólin, sem heppnir fylgjendur á samfélagsmiðlum geta eignast á næstunni.
Matur Jól Jólamatur Uppskriftir Mest lesið Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Lífið Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Lífið Alexandra greifynja breytir nafninu Lífið Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Lífið Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Lífið Svaraði engu um Affleck Lífið Birnir og Bríet gefa saman út plötu Lífið Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Lífið Rakel María fann draumaprinsinn Lífið Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Sjá meira