Skoðun

Samfélagsbíllinn

Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar

Undanfarið hefur verið umræða um ívilnanir á rafbíla og hvort ekki þurfi að endurskoða þær með auknum fjölda rafbíla á götum landsins. Það er mikilvægt að rifja aðeins upp af hverju ríkið er yfirleitt að ívilna þessum tækjum og hvað ríkið fær í raun fyrir peninginn. Með ívilnunum er ríkið í raun að fjárfesta í samfélagsávinningi sem fylgir því að kaupandi velur rafbíl í stað bensínbíls. Með öðrum orðum þá fylgir ákveðinn samfélagsávinningur slíkum kaupum sem snertir miklu fleiri en kaupandann sjálfan og myndar eftirsóknaverð verðmæti fyrir samfélagið allt.

Orkuöryggi

Með rafbílakaupum eykst orkuöryggi Íslands. Rafbíll nýtir innlenda orku í stað þess að vera háður innfluttu eldsneyti. Til að setja í samhengi samfélagsgildi orkuöryggis þá má benda á fæðuöryggi til samanburðar. Ríkið styrkir innlendan landbúnað um á annan tug milljarða á ári. Þessi styrkir eru ekki síst til að tryggja fæðuöryggi á Íslandi. Það er því varla óeðlilegt að styrkja orkuöryggið líka enda jafn líklegt að hnökrar geti orðið á olíuinnflutningi til landsins eins og á matvælainnflutningi.

Hagkvæmara raforkukerfi

Raforkukostnaði íbúa má skipta í tvennt þ.e. raforkuframleiðslu og raforkudreifingu. Raforkudreifingin er áhugaverði hlutinn í þessu samhengi. Skoðum sem dæmi tíu húsa götu í glænýju hverfi. Það kostar talsverða fjárfestingu að leggja rafmagn í þessa götu og dreifikostnaðurinn sem íbúar borga á að standa undir þeirri fjárfestingu og viðhaldi. Ef fimm íbúar kaupa rafbíl þá aukast einfaldlega tekjurnar sem dreifiveitan fær þó svo að kostnaður hennar aukist oftast ekkert (sömu raflínur). Flutn­ings- og dreifi­fyr­ir­tæki raf­orku eru háð sér­leyfi sem þýðir að þau hafa lög­bundin tekju­mörk. Með ein­földum hætti má segja að ef tekjur þeirra aukast, umfram upp­bygg­ing­ar-­ og viðhaldsþörf, þá ber þeim að lækka verð á flutn­ingi. Með öðrum orðum þá mun betri nýt­ing raf­lína, með til­komu raf­bíla, lækka raf­orku­verð til lengri tíma. Ofan á þetta skapa raf­bílar mögu­leika á hag­kvæmri geymslu raf­orku í geymum sínum sem, ef rétt er haldið á spöð­un­um, geta tekið út óhag­kvæma afltoppa og dreift álagi með skil­virk­ari hætti. Rafbílar geta því lækkað samfélagskostnað raforkukerfisins talsvert.

Mengun heilsuspillandi efna

Bruni jarðefnaeldsneytis veldur heilsuspillandi mengun og er áætlað bruni jarðefnaeldsneytis valdi ótímabærum dauða yfir 8 milljón jarðarbúa á ári hverju. Hér á landi er þetta auðvitað miklu minna vandamál enda umferð minni og vindar tíðir. Samt sem áður eru klárlega heilsuspillandi efni að koma úr púströrum íslenskra bifreiða sem gott væri að losna við. Rafbílar eru því örlítið, en mikilvægt, innlegg í minni heilbrigðiskostnað t.d. vegna ýmissa öndunarfærasjúkdóma.

Efnahagsstöðuleiki

Innflutningur á olíu kostar þjóðina tugi milljarða á ári. Rafbílar draga ekki einungis úr útflæði gjaldeyris heldur minnkar líka óstöðuleikinn sem fylgir verðsveiflum á olíu. Rafbílavæðing er því alvöru samfélagsávinningur fyrir alla, ekki bara þá sem aka á slíkum tækjum.

Minni hávaði

Hávaði veldur streitu og kostnaði. Samfélög eru tilbúinn að fjárfesta í minni hávaða og eyða oft talsverðum upphæðum t.d. í hljóðmanir. Rafbílar minnka örlítið umferðarhávaða sem er klárlega samfélagsverðmæti.

Minni losun gróðurhúsalofttegunda

Ísland hefur, eins og nánast allar þjóðir heims, ákveðið að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Við höfum undirritað alvöru skuldbindingar en ljóst er að verkefnið verður ekki ókeypis. Eini alvöru mælikvarðinn á hvað losun CO2 kostar er verð á losun á markaði. Verð á tonninu hefur verið í kringum 70 evrur undanfarið eða í kringum ellefu þúsund krónur tonnið. Rafbíll minnkar losun á Íslandi um þrjú tonn á ári sem er þá 33 þúsund krónur á ári. Til gamans má geta þess að kolefnisgjald er lagt á bensínlítrann sem nemur 10 krónum en ef kolefnisgjaldið fylgdi markaðsverði kolefnis ætti hann að vera 25 krónur í dag. Rafbílar munu minnka samfélagskostnað vegna skuldbindinga okkar í loftslagsmálum.

Mikilvægt er að benda á að enn meiri samfélagsávinningur fæst með breyttum ferðvenjum eins og hjólreiðum og almenningssamgöngum. Ólíklegt er þó að einkabílanotkun leggist af og því nauðsynlegt að styðja bæði við breyttar ferðavenjur og orkuskipti bifreiða. Öllum ætti þó að vera ljóst að það fjármagn sem ríkið setur í þessa málaflokka er alls ekki kastað út í loftið heldur skilar það fjölþættum samfélagsávinningi sem vert er að fjárfesta í.

Höfundur er framkvæmdastjóri Orkuseturs.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×