Erlent

Miklar skemmdir á þing­húsinu í Höfða­borg

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, segir einn í haldi vegna brunans.
Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, segir einn í haldi vegna brunans. AP Photo/Tsvangirayi Mukwazhi

Eldur kviknaði í suðurafríska þinghúsinu í morgun og breiddist hratt út. Þak hússins er fallið saman og miklar skemmdir urðu á elstu hlutum byggingarinnar. 

Slökkviliðsmenn hafa nú náð að hemja útbreiðslu eldsins en hann brennur þó enn í einhverjum hluta byggingarinnar. Reykur stígur þó enn upp úr þinghúsinu en var mun meiri fyrir nokrum klukkustundum síðan. 

Svo virðist sem enginn hafi verið inni í húsinu en í það minnsta hefur enginn slasast svo vitað sé. Enn er óvitað hvernig eldurinn kviknaði en Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, sagði í samtali við fréttamenn fyrir utan þinghúsið að einn hafi verið handtekinn og lögregla að yfirheyra hann í tengslum við brunann. 

Þá virðist vera sem eldvarnakerfi þinghússins hafi ekki verkað sem skyldi. Brunabjöllur fóru ekki af stað fyrr en eftir að slökkviliðsmenn voru komnir á staðinn og úðarakerfið fór þá ekki af stað. Ramaphosa lofaði slökkviliðmenn og sagði þeim að þakka að ekki hafi farið verr.

Þinghúsið samanstendur af nokkrum byggingum, sú elsta var byggð árið 1884. Þingsalur neðri deildarinnar er í nýrri byggingum en þingsalur efri deildarinnar er í elstu byggingunni, þar sem eldurinn kviknaði. Eldurinn hefur að mestu verið einangraður við eldri bygginguna. 


Tengdar fréttir

Þinghús Suður-Afríku brennur

Mikill eldur brennur nú í þinghúsi Suður-Afríku í Höfðaborg. Tugir slökkviliðsmanna eru við störf við að slökkva eldinn og mikill, svartur reykur stígur upp frá húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×