Correa skoraði tvö í sigri Atletico Madrid Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 2. janúar 2022 17:27 Angel Correa í leiknum í dag. EPA-EFE/Fernando Alvarado Argentínumaðurinn Angel Correa var hetja Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í dag en hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Rayo Vallecano. Sigurinn lyfti Atletico mönnum upp í fjórða sæti deildarinnar.
Fyrir leikinn sátu liðin í fjórða og fimmta sæti deildarinnar, Rayo Vallecano í fjórða sætinu með 30 stig en Atletico Madrid í því fimmta með 29 stig. Það var því til mikils að vinna fyrir bæði liðin sem eru í harðri baráttu um að tryggja sér meistaradeildarsæti. Leikurinn byrjaði á hefðbundnum nótum þegar að Diego Simeone þjálfari Atletico Madrid fékk gult spjald fyrir kjaftbrúk á 7. mínútu. En heimamenn voru þó sterkari og áttu hættulegri færi. Það var svo á 28. mínútu sem ísinn var brotinn. Yannick Carrasco átti þá skemmtilegan sprett og síðan fyrirgjöf sem hafnaði í varnarmanni. En Rayo tókst ekki að hreinsa boltann og Angel Correa var fyrstu að átta sig og kom boltanum í netið. 1-0 í hálfleik. Madrídingar juku forskot sitt svo strax á 53. mínútu. Þar var aftur á ferðinni Correa. Eftir snarpa sókn heimamanna þá átti Renan Lodi fyrirgjöf frá vinstri sem Correa átti í engum vandræðum með að koma í netið. 2-0 og það urðu úrslit leiksins. Liðin höfðu því sætaskipti og er Atletico því í fjórða sætinu með 32 stig en Rayo Vallecano er með 30 stig í fimmta sæti.
Spænski boltinn Mest lesið Danir óstöðvandi Handbolti „Hjá þessu félagi þarftu að vinna alla leiki“ Fótbolti Orri Steinn kom ekki við sögu í tapi Sociedad Fótbolti „Keppni um hvort liðið myndi ná að strengja saman nokkur stopp í röð“ Körfubolti „Þeir voru pottþétt að spara“ Handbolti „Erum í þessu til þess að vinna“ Körfubolti Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“ Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 97-79 | Öruggt hjá heimamönnum á Króknum Körfubolti Loks vann Tottenham Fótbolti Bruno til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir „Hjá þessu félagi þarftu að vinna alla leiki“ Orri Steinn kom ekki við sögu í tapi Sociedad Loks vann Tottenham Bruno til bjargar Úr frystinum og til Juventus Segir Betu vera brjálæðing en á jákvæðan hátt Betlaði einu sinni mat á götunni en er nú hetja Barcelona Haaland fær tíu milljarða hjálp Mörkin úr Meistaradeildinni í gærkvöldi: Sjáðu hrunið hjá Man. City Íslendingarnir orðnir fjórir hjá Kristianstad Kusu að henda út myndbandsdómgæslu Sér eftir því sem hann sagði Feyenoord pakkaði Bayern saman Brest mátti þola tap í Þýskalandi Þægilegt hjá Skyttunum Man City glutraði niður tveggja marka forystu Landsliðsþjálfarinn Arnar var í stúkunni þegar Hákon mætti á Anfield Cole Palmer er stolt lítillar þjóðar í Karabíska hafinu „Held ég hafi þurft á því að halda“ Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Mannvirkjasjóður KSÍ fer næstu árin í uppbyggingu á Laugardalsvelli Sjáðu markaveislu Barcelona, Hákon búa til mark á Anfield og öll hin mörkin í gær Dortmund rak þjálfarann sinn eftir tapið í gær Slagsmál í leikmannagöngunum eftir sigur Barcelona í gær Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Magnaður endurkomusigur Atlético Madríd Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Monaco með mikilvægan sigur á Aston Villa Sjá meira