Sport

Hrútarnir á heimavelli í Super Bowl og mæta þar ævintýraliði ársins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joe Burrow, leikstjórnandi Cincinnati Bengals, á herðum liðsfélaga sinna í leikslok en hann hefur gjörbreytt liðinu á aðeins tveimur árum.
Joe Burrow, leikstjórnandi Cincinnati Bengals, á herðum liðsfélaga sinna í leikslok en hann hefur gjörbreytt liðinu á aðeins tveimur árum. AP/Charlie Riedel

Los Angeles Rams og Cincinnati Bengals komust í nótt í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, þegar þau tryggðu sér sigur í Ameríku- og Þjóðardeildinni.

Los Angeles Rams liðið verður því á heimavelli í Super Bowl því leikurinn fer fram á So-Fi leikvanginum í Los Angeles 13. febrúar næstkomandi.

Rams vann 20-17 sigur á San Francisco 49ers í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar en sá leikur var einnig á So-Fi.

Mun óvæntari úrslit var þó endurkomur 27-24 sigur Cincinnati Bengals á útivelli á móti Kansas City Chiefs en leikurinn endaði í framlengingu.

Patrick Mahomes og félagar í Kansas City Chiefs voru á góðri leið í þriðja Super Bowl leikinn í röð þegar þeir komust í 21-3 í fyrri hálfleiknum.

Það hefur lítið hengið hjá Mahomes í seinni hálfleik að undanförnu og ekkert gekk upp hjá honum eftir hlé í gær. Joe Burrow leiddi spútniklið Bengals til baka inn í leikinn og leikurinn endaði í framlengingu.

Þar fékk Chiefs liðið að byrja með boltann við mikinn fögnuð stuðningsmanna liðsins. Það var hins vegar stutt gaman því Mahomes kastaði frá sér boltanum og nýliðinn Evan McPherson tryggði Bengals sigurinn með vallarmerki.

Sparkarinn Evan McPherson hefur verið magnaður í úrslitakeppninni en hann tryggði liðinu einnig sigurinn á móti Tennessee Titans viku áður.

Leikstjórnandinn Joe Burrow hjá Bengals skrifaði söguna með því að verða sá fyrsti sem er valinn númer eitt í nýliðavalinu sem kemur liði sínu í Super Bowl á fyrstu tveimur árum sínum í NFL-deildinni.

Los Angeles Rams lenti líka undir á móti San Francisco 49ers en gestirnir komust í 17-7 í leiknum og voru enn með tíu stiga forskot í lokaleikhlutanum.

Snertimark frá útherjanum magnaða Cooper Kupp og tvö vallarmörk frá Matt Gay tryggðu Los Angeles Rams sigur og sæti í úrslitaleiknum um titilinn. Seinna vallarmarkið kom þegar ein mínúta og 49 sekúndur voru eftir af leiknum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×