Hjónin Elva Hrönn Hjartardóttir og Andri Reyr Haraldsson eru á leigumarkaði með tvö börn og hafa síðasta eina og hálfa árið leitað að hentugri íbúð fyrir fjölskylduna í Reykjavík. Frásögn Elvu af erfiðleikum við að komast inn á fasteignamarkaðinn vakti gríðarlega athygli á Vísi í gær. Fréttastofa heimsótti hana og Andra í leiguíbúðina í Þverholt í gær og tók þau nánar tali. Viðtalið má sjá í spilaranum efst í fréttinni.
Hjónin vantar sárlega aukaherbergi fyrir unglinginn og í nóvember gerðu þau tilboð í íbúð við Bólstaðarhlíð. Ásett verð var 49,9 milljónir en þau ráku upp stór augu þegar sama íbúð, að því er virðist alveg óbreytt, dúkkaði upp á fasteignavefnum í fyrradag - tíu milljónum dýrari.
„Þá varð mér bara allri lokið. Og sendi honum linkinn,“ segir Elva.
„Maður verður bara pirraður og reiður þegar maður sér þetta. Við erum með greiðslumat, við erum með útborgun. En við eigum einhvern veginn ekki séns. Það eru einhverjir braskarar sem eru að staðgreiða íbúðir og skiljanlega tekur fólk staðgreiðslutilboði frekar,“ segir Andri.
Erfiður veruleiki
Meðalkaupverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 5 milljónir króna á tveimur síðustu mánuðum árs í fyrra, samkvæmt skýrslu húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Nú í byrjun febrúar hafði framboð íbúða dregist saman um 74 prósent síðan í maí 2020.
„Og þetta er bara veruleikinn sem við og svo mörg önnur standa frammi fyrir í dag,“ segir Elva.
Þau segja ljóst að eitthvað verði að gera til að greiða úr þessum margþætta vanda.
„Ég tel að þetta verði kjarasamningsmál númer eitt eða tvö. Ég trúi ekki öðru einhvern veginn, af því þetta er orðinn svo rosalega stór hópur sem kemst ekki inn á fasteignamarkaðinn,“ segir Andri.
En leitin heldur áfram og svo gæti farið að fjölskyldan þurfi að leita út fyrir höfuðborgarsvæðið.
„Við höfum vissulega hugsað um það að sofa á þessum svefnsófa til þess að krakkarnir fái sitthvort herbergið. Við gerum bara það sem við þurfum að gera,“ segir Elva.