Tíska og hönnun

Innlit á heimili Kim Kardashian

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kim Kardashian er hrifin af mjög látlausum litasamsetningum.
Kim Kardashian er hrifin af mjög látlausum litasamsetningum. Skjáskot/Youtube

Kim Kardashian fékk Vogue í heimsókn á dögunum og sýndi hún alla sína uppáhalds hluti. Þar á meðal eru málverk eftir dóttur hennar North.

Svo virðist sem Kim hafi bætt við meira af blómum og listaverkum á heimilið eftir að Ye, áður Kanye West, flutti út. Hún segir að þó að húsið virðist allt „beige“ þá séu barnaherbergin öll litrík og skemmtileg. 

Hún gengur samt svo langt í að litasamræma allt aðalrýmið og húsið að utan að bílarnir eru í stíl við restina af húsinu.

„Húsið er mjög minimalískt. Mér finnst svo mikil kaos í veröldinni að þegar ég kem heim, vil ég hafa allt mjög róandi og rólegt. Leikherbergið er fullt af dóti, eitt barnaherbergjanna er bleikt, eitt fjólublátt, eitt blátt og eitt með risaeðluþema. “

Í Vogue myndbandinu má meðal annars sjá minningabækurnar sem Kim hefur útbúið fyrir öll börnin sín fjögur, hennar eigin setustofu við svefnherbergið og minimalískt eldhús fjölskyldunnar. Kim heldur líka upp á ýmsar minningar eins og gömul afmæliskort úr æsku og poka af hári. 

Innlit Vogue má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

„Ef þið viljið fá alla söguna, þá verðið þið bara að kaupa bókina“

„Ég veit ekki hvað hefur ekki gerst hjá Kanye West í þessari viku!“ segir Birta Líf Ólafsdóttir. Vikan hefur verið viðburðarík í lífi tónlistarmannsins sem hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarin misseri. Það skal þó tekið fram að West er með geðhvarfasýki sem hann opnaði sig um fyrir fjórum árum síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.