Innlent

Sigur­björg og Dóra leiða Pírata í Kópa­vogi og Reykja­vík

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sigurbjörg Erla leiðir Pírata í Kópavogi og Dóra Björt í Reykjavík.
Sigurbjörg Erla leiðir Pírata í Kópavogi og Dóra Björt í Reykjavík. Píratar

Nú liggur fyrir uppröðun á efstu sætum lista Pírata í Reykjavík og Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Dóra Björt Guðjónsdóttir leiðir listann í Reykjavík en Sigurbjörg Erla Egilsdóttir leiðir í Kópavogi.

Tilkynnt var um úrslitin í dag í Tortuga, höfuðstöðvum Pírata í Síðumúla í Reykjavík, og á vefsíðu flokksins. Hér að neðan má sjá efstu sæti listanna tveggja.

Efstu sæti Pírata í Reykjavík

  1. Dóra Björt Guðjóns­dótt­ir
  2. Alexandra Briem
  3. Magnús Davíð Norðdahl
  4. Kristinn Jón Ólafsson
  5. Elísabet Guðrúnar- og Jónsdóttir

Efstu sæti Pírata í Kópavogi

  1. Sig­ur­björg Erla Eg­ils­dótt­ir
  2. Indriði Ingi Stefánsson
  3. Eva Sjöfn Helgadóttir
  4. Matthías Hjartarson
  5. Margrét Ásta Arnarsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×