Veður

Ó­veður að skella á landið og appel­sínu­gular við­varanir

Atli Ísleifsson skrifar
Mjög djúp lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf í dag. Sendir hún skil yfir landið með stormi eða roki, talsverðri rigningu og hlýnandi veðri.
Mjög djúp lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf í dag. Sendir hún skil yfir landið með stormi eða roki, talsverðri rigningu og hlýnandi veðri. Veðurstofan

Appelsínugular viðvaranir verða í gildi víða um land í dag og skellur óveðrið á um upp úr klukkan níu á Faxaflóa og Breiðafirði en skömmu síðar á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Miðhálendinu.

Annars staðar, og þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu verða gular viðvaranir í gildi fram eftir degi og sums staðar fram á nótt.

Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands segir að ástæða þessa leiðindaveðurs sé mjög djúp lægðvið Hvarf. Sendir hún skil yfir landið með stormi eða roki, talsverðri rigningu og hlýnandi veðri.

Hún fer til norðausturs inn á Grænlandshaf í dag og sendir skil yfir Ísland með sunnan og suðaustan stormi eða roki og talsverðri úrkomu.

Að sögn veðurfræðings fer úrkoman fljótlega yfir í rigningu því það hlýnar í veðri og má búast við 3 til 9 stiga hita seinnipartinn. Því er varað við því að vatnselgur geri valdið vandræðum og rétt er að vera á varðbergi.

Á fjallvegum má gera ráð fyrir snjókomu eða slyddu fram eftir degi ásamt mikilli veðurhæð og undirstrikar veðurfræðingur því að í dag sé mjög slæmt ferðaveður víðast hvar um land. Þegar skilin hafa gengið yfir á vestanverðu landinu í kvöld tekur við allhvöss suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum og það fer að kólna.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, en bjartviðri norðaustantil á landinu. Kólnar í veðri, víða vægt frost seinnipartinn.

Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 10-18 og él, en áfram þurrt norðaustanlands. Frost yfirleitt 0 til 3 stig.

Á fimmtudag: Hvöss suðvestlæg átt og víða snjókoma, en él síðdegis og styttir þá upp á austanverðu landinu. Hiti breytist lítið.

Á föstudag og laugardag: Suðvestan 5-13 og dálítil él, en þurrt og bjart norðaustantil á landinu. Vægt frost.

Á sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu eða slyddu og hlýnar, en úrkomulítið fyrir norðan og austan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×