Erlent

Þúsundir Úkraínumanna snúa til baka í stríðið

Heimir Már Pétursson skrifar
Volodymyr Zelenskyy forseti tekur sjálfu með særðum hermanni á sjúkrahúsi í Kænugarði.
Volodymyr Zelenskyy forseti tekur sjálfu með særðum hermanni á sjúkrahúsi í Kænugarði. AP/forsetaembætti Úkraínu

Þúsundir Úkraínumanna hafa snúið til baka til heimalandsins til að deila örlögum með fjölskyldu sinni og eða taka þátt í stríðinu. Enn hefur ekki tekist að koma hjálpargögnum til stríðshrjáðra í Mariupol og Rússar hertu árásir sínar á Kænugarð síðast liðna nótt.

Rússar héldu uppi miklum eldflauga og sprengjuárásum á Kænugarð í nótt og hæfðu meðal annars fimmtán hæða fjölbýlishús sem er mikið skemmt eða ónýtt eftir árásina. Að minnsta kosti einn maður lést og fjöldi fólks grófst undir húsarústum. Óskar Hallgrímsson og kona hans vöknuðu við lætin í nótt.

Kona skoðar eyðilegginguna eftir loftárásir Rússa á Kænugarð síðast liðna nótt.AP/Efrem Lukatsky

„Síðan klukkan fimm, vöknum við bæði við þvílíkar sprengingar og læti. Þetta var eins og þetta væri bara í garðinum hjá okkur. Húsið nötraði allt og skalf og hélt áfram," segir Óskar.

Þetta hafi verið mestu loftárásir Rússa á Kænugarð frá því á fyrstu dögum stríðsins. Mest heyrist þó í loftvörnum Úkraínuhers sem gengið hafi mjög vel að granda flugskeytum Rússa.

Fjölbýlishúsið í Kænugarði er gjörónýtt eftir loftárás Rússa.AP/Vadim Ghirda

Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga fjölda manns úr brennandi fjölbýlishúsinu í nótt. Hinn tuttugu og fjögurra ára gamli slökkviliðsmaður Andryi barðist við tárin á vettvangi.

„Við tökum á honum stóra okkar og höldum áfram að vera sterk og allt fer vel. Við munum verja Úkraínu, verja líf fólksins okkar. Það skiptir öllu máli,“ sagði slökkviliðsmaðurin ungi.

Alex Goncharenko þingmaður á úkraínska þinginu var einnig sigurviss þar sem hann var mættur til að virða fyrir sér afleiðingar árásarinnar í morgun.

„Putin getur ekki unnið herinn okkar. Herinn okkar heldur vel í við hann þannig að nú ræðst hann á óvopnað fólk, ófrískar konur eins og í Mariupol, börn og fólk á flótta. Þannig að þetta er þjóðarmorð á 21. öldinni í miðri Evrópu,“ segir þingmaðurinn.

Mannfallið og eyðileggingin í Mariupol hefur verið gífurleg. Íbúðarhús, skólar og sjúkrahús eru í rústum og illa gengur að koma vistum til íbúanna. Rússar hafa setið um borgina í um hálfan mánuð og haldið uppi stöðugum loftárásum, þannig að fólk sem vogar sér upp úr kjöllurum þarf stöðugt að hlaupa í skjól undan flugskeytum og stórskotaliðsárásum.

Flestir þeirra tæplega þriggja milljóna sem flúið hafa innrás Rússa í Úkraínu eru konur og börn. Myndin er tekin í bænum Medyka við landamæri Úkraínu og Póllands.AP/Petros Giannakouris

Ung kona sem hljóp í skjól í stigagangi með föður sínum og hópi fólks féll algerlega buguð í fang eldri föður síns.

„Pabbi ég get þetta ekki lengur,“ sagði hún grátandi og beindi síðan orðum sínum til umheimsins: „Við fáum engar upplýsingar. Við vitum ekkert. Það er engu líkara en við búum djúpt inni í skógi. Þeir hefðu átt að upplýsa okkur, að minnsta kosti um hvað er að gerast hvar,“ sagði konan grátandi.

Útför fjögurra hermanna sem féllu í árás Rússa á herstöð Úkraínumanna í Yarokiv.AP/Bernat Armangue

Friðaviðræður hafa ekki skilað neinu hingað til en Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu þakkar þeim Rússum sem þora þrátt fyrir hættu áfangelsisvist að mótmæla stríðinu. Eins og starfskonu rússneska sjónvarpsins sem truflaði útsendingu í gær með slagorðum gegn stríðinu og póstaði yfirlýsingu á Netið.

„Hið hughrakka varnarlið okkar heldur áfram að valda rússneskum hersveitum miklu tjóni. Fjöldi þyrlna sem skotinn hefur verið niður nálgast hundraðið. Þeir hafa nú þegar misst um áttatíu þotur, hundruð skriðdreka og þusundir af alls kyns búnaði öðrum,“ segir Zelenskyy.


Tengdar fréttir

Íslendingur í Kænugarði segir Rússa orðna örvæntingarfulla

Forsætisráðherrar þriggja austurevrópulanda funda með forseta Úkraínu í Kænugarði í dag. Höfuðborgin varð fyrir einum mestu loftárásum stríðsins síðast liðna nótt. Óskar Hallgrímsson sem býr í borginni segir Rússa orðna örvæntingarfulla því Úkraínumönnum hafi gengið vel að rjúfa birgðaleiðir þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×