Leita að fanga sem slapp með aðstoð fangavarðar í Alabama Atli Ísleifsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 3. maí 2022 08:02 Bandarísk yfirvöld hafa boðið þeim 10 þúsund dali sem veitir upplýsingar sem leiðir til handtöku þeirra Casey White og Vicky White. AP Mikil leit er nú gerð að strokufanga í Alabama í Bandaríkjunum sem virðist hafa sloppið úr fangelsi með aðstoð fangavarðar, sem einnig er leitað.
Fanginn, hinn 38 ára Casey White, sem grunaður er um morð á 58 ára konu árið 2020, sást síðast með fangaverðinum Vicky White á lögreglustöð í Alabama síðastliðinn föstudag. White sagðist þá vera á leið með fangann í geðrannsókn, en síðar kom í ljós að engin slík rannsókn hafði verið áætluð. Nú er talið víst að þau Casey White og Vicky White hafi skipulagt flóttann í sameiningu. Handtökutilskipun hefur því einnig verið gefin út á hendur Vicky White, en skötuhjúin eru ekkert skyld þótt þau beri sama ættarnafn. Nú er einnig komið í ljós að Vicky White hafði sagt upp störfum sem fangavörður og einnig hafði hún selt hús sitt á svæðinu og sagt vinum sínum að hún væri á leið á ströndina. Dagurinn sem skötuhjúin hurfu var lokadagur hennar í vinnunni, að því er segir í frétt BBC.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Máttu ekki banna fréttamenn AP Erlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Innlent Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Sjá meira