Fótbolti

Guðný hafði betur í Íslendingaslagnum um Mílanó

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Guðný Árnadóttir.
Guðný Árnadóttir. Getty

Íslenskar knattspyrnukonur eru á mála hjá ítölsku stórveldunum AC og Inter Milan sem mættust í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Guðný Árnadóttir var í byrjunarliði AC Milan en fór meidd af velli eftir hálftíma leik en þá þegar hafði AC Milan náð forystunni og var staðan 0-1.

Fór að lokum svo að AC Milan vann 0-3 sigur.

Anna Björk Kristjánsdóttir er á mála hjá Inter Milan en hún sat allan tímann á varamannabekknum í dag.

AC Milan í þriðja sæti deildarinnar en Inter í því fimmta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×