Framsóknarfólk í borginni ræddi stöðu mála á fundi í gærkvöld en einungis einn raunhæfur möguleiki er til staðar í meirihlutamyndun í borginni eftir að Samfylking, Píratar og Viðreisn tóku ákvörðun um að ganga bundin til viðræðna.
Á fundinum var borgarfulltrúum Framsóknar veitt skýrt umboð til að ganga til meirihlutaviðræðna við þá flokka sem þeir vilji en að sögn Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort gengið verði til formlegra viðræðna við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn.
Framsókn sækist eftir áhrifastöðum
Morgunblaðið greindi frá því í morgun að samhljómur hafi verið um það á fundinum í gær meðal grasrótar flokksins að gerð yrði skýlaus krafa um borgarstjórastólinn ef Framsókn færi í viðræður um myndun meirihluta til vinstri.
Er þetta rétt?
„Jájá, ég meina allir flokkar gætu haldið fund og oddvitar þeirra gætu komið fram með skýlausa kröfu um það að maður verði borgarstjóri. Nú er staðan þessi að fram undan er að reyna að ná saman með einhverjum flokkum til þess að mynda meirihluta en ég hef alveg sagt skýrt að mér þykir ekkert skynsamlegt að setja fram einhverja afarkosti áður en viðræður hefjast og þannig er það nú bara. En auðvitað sækist Framsókn eftir því að komast í þær áhrifastöður sem geta skilað einhverjum árangri,“ sagði Einar í Bítinu á Bylgjunni.
Hann bætti við að flokkurinn hafi lagt áherslu á að hann geti unnið með öllum en valkostunum hafi vissulega fækkað með tilkomu bandalags Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.

„Þessir flokkar eru með stefnu sem er ekki ólík Framsóknar en við höfum kallað eftir breytingum þannig að ef það fer svo að við ræðum við þau um meirihlutamyndun þá verður að vera alveg skýrt að áherslur Framsóknar þurfa að vera þar í algjörum öndvegi,“ segir Einar.
En það er nú ekki mikil breyting ef Framsókn fer í samstarf með Samfylkingu og Dagur B. verður áfram borgarstjóri.
„Já, þetta er bara góður punktur hjá þér.“
Þannig að þú munt gera það sem kröfu að þú verðir borgarstjóri svo það verði einhver breytingar?
„Við þurfum bara að sjá til. Ef við ákveðum að gera þetta þá snýst þetta nú fyrst og fremst um málefnin og svo skipta menn með sér verkum og fyrst þurfum við nú að ákveða hvort við ætlum að tala við þau um þetta.“
Líst ekki illa á að fara í viðræður við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn
Aðspurður um það hvort Einar haldi öðrum möguleikum opnum segir hann að þetta sé eini möguleikinn í stöðunni, einkum þar sem margir flokkar hafi útilokað samstarf með Sjálfstæðisflokki.
Þannig að þú ert ekki að fara til hægri væntanlega?
„Jah, það yrði bara ekki nógu fjölmennt á fundinum til að hefja þær. Það væru einhvers konar minnihlutaviðræður ef það væri settur á slíkur fundur, það er nú bara staðan,“ segir Einar.
Þó hafnar Einar því að flokkurinn eigi enga aðra kosti og flokkurinn hafi enga aðra kosti en að mynda meirihluta með Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn.
„Það er líka hægt að vera í minnihluta, ef okkur líst ekki á það að fara í þetta þá er enginn sem pínir okkur í það en ég verð bara að segja það að mér líst alls ekki illa á það að fara í viðræður við Samfylkingu, Pírata og Viðreisn. Þetta eru flokkar sem við eigum málefnalega samleið með og þannig er nú bara staðan.“
Einar bætir við að borgarfulltrúar Framsóknar ætli að ræða saman síðar í dag og taka ákvörðun um hvort þau ætli að fara þessa leið. Hann segir að ef gengið verði til viðræðna muni flokkurinn meðal annars leggja fram kröfur um breytta húsnæðisstefnu, að bygging Sundabrautar verði sett í forgang og gerðar verði umbætur í málefnum barna.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Einar í heild sinni í spilaranum fyrir neðan.