Fótbolti

Real horfir til Manchester fyrst Mbappé kom ekki

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Real Madríd vill Raheem Sterling.
Real Madríd vill Raheem Sterling. EPA-EFE/PETER POWELL

Evrópu- og Spánarmeistarar Real Madríd vilja fá Raheem Sterling, leikmann Manchester City, í sínar raðir. Á hann að leysa Kylian Mbappé af hólmi en talið var nær öruggt að franski framherjinn myndi ganga í raðir Real í sumar.

Mbappé kom nær öllum á óvart þegar hann ákvað að vera um kyrrt í París eftir að hafa verið orðaður við Real í meira en ár og á sama tíma neitað að skrifa undir nýjan samning við París Saint-Germain. Hann skrifaði á endanum undir og Real þurfti því að framherja til að fylla það skarð sem talið var að Mbappé myndi fylla.

Real og La Liga, spænska úrvalsdeildin voru hins vegar ekki par sátt með ákvörðun Mbappé og telja PSG hafa óhreint mjöl í pokahorninu.

Að Sterling, samningur hans við Manchester City rennur út sumarið 2023 og því ætti Real að geta sótt enska vængmanninn nokkuð ódýrt. Hinn 27 ára gamli Sterling hefur verið hjá Man City síðan 2015 en þar áður var hann á mála hjá Liverpool.

Sterling – sem hefur skoraði alls 17 mörk og lagði upp 9 í 47 leikjum á leiktíðinni – hefur talað fallega um Real Madríd í fortíðinni samkvæmt frétt The Guardian og hefur áður verið orðaður við lið sem ekki eru í Englandi. Það virðist sem áhuginn sé sameiginlegur en Carlo Ancelotti, þjálfari Real, vill bæta við sig sóknarþenkjandi mönnum sem geta leyst fleiri en eina stöðu.

Gareth Bale er loks á leið frá félaginu og þá Mariano Díaz og Luka Jovic ekki heillað. Eden Hazard hefur lofað að mæta til leiks í haust í sinu besta formi en ef Real getur fengið Sterling á viðráðanlegu verði stefnir allt í að enski landsliðsmaðurinn færi sig um set frá Manchester til Madríd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×