Fótbolti

Sjáðu mörkin úr dramatísku jafntefli Vals og ÍBV

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ásdís Karen Halldórsdóttir bjargaði Val á síðustu stundu. Hér fagnar hún marki gegn Tindastóli á síðustu leiktíð.
Ásdís Karen Halldórsdóttir bjargaði Val á síðustu stundu. Hér fagnar hún marki gegn Tindastóli á síðustu leiktíð. Vísir/Hulda Margrét

Topplið Vals varð sér úti um stig í blálokin þegar liðið fékk ÍBV í heimsókn í Bestu deildinni í fótbolta á fimmtudagskvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Sandra Voltane Eyjakonum í forystu snemma í síðari hálfleik.

Eyjakonur héldu forystunni út venjulegan leiktíma og virtust ætla að sigla sigrinum heim en Ásdís Karen Halldórsdóttir náði að bjarga stigi fyrir heimakonur þegar hún skoraði á 93.mínútu.

Valur hefur tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar en ÍBV er í sjötta sæti með ellefu stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×