Þetta er fjórða útlendingafrumvarp innanríkis- og dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sem deyr drottni sínum á Alþingi. Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar og aðrir andstæðingar frumvarpsins bentu á að það hefði falið í sér, eftir aðendanleg niðurstaða með höfnun um vernd eða hæli hér álandi lægi fyrir, missti fólk rétt á öllum bótum, heilbrigðisþjónustu og húsaskjóli eftir 30 daga.

„Það átti að skerða friðhelgi þeirra. Stjórnvöld áttu að fá að sækja heilbrigðisupplýsingar án samþykkis. Algerlega opið. Það er hvergi þannig og hvergi í kerfinu okkar þannig. Það var auðvitað algerlega óásættanlegt,“ segir Helga Vala.
Þá hefði verið þrengt að möguleikum til fjölskyldusameininga. Eftir að dómsmálaráðherra lagði frumvarpið fram lögðu þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins til breytingar á frumvarpinu.
„Til mikils batnaðar og erum mjög stolt af þeim. En Jón gat ekki fallist á þær allar. Kom með hugmyndir á móti sem voru þess eðlis að þær hefðu skert grundvallarréttindi fólks og þar með sofnaði málið,“ segir Helga Vala.
Stjórnarflokkarnir ná samkomulagi um rammáætlun
Annað umdeilt mál á borði ríkisstjórnarinnar er þingályktun um rammaáætlun eða nýtingu og vernd orkuauðlinda. Ný heildstæð rammaáætlun hefur ekki litið dagsins ljós í níu ár vegna deilna um virkjanakosti en Hvammsvirkjun var þó bætt í nýtingarflokk árið2015. Nú er reiknað með að málið komi út úr nefnd eftir hádegi á morgun.

„Stærstu tíðindin eru þau sýnist manni að ríkisstjórnarflokkarnir þrír virðast hafa komist að samkomulagi,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar sem fjallað hefur um málið.
Þótt nefndin hafi unnið vel í málinu væri niðurstaðan eingöngu stjórnarflokkanna. Eftir margar misheppnaðar tilraunir undanfarin ár til að afgreiða þessa þriðju rammaáætlun hefðu stjórnarflokkarnir loks náð lendingu.
„Það hefur ekki unnið með þeim í þessu máli að vera á þessum ásum. En hérna virðist það vera að gerast að Vinstri grænum og Sjálfstæðisflokki sé að takast að ganga hönd í hönd í þessum málaflokki. Sem eru auðvitað tíðindi í sjálfu sér,“ segir Þorbjörg Sigríður. Hún reikni með töluverðri umræðu um málið eftir að það kemur út úr nefnd, enda málið umdeilt.