Fótbolti

Chelsea líklegur næsti áfangastaður hjá Dembele

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ousmane Dembele er mögulega á leið til Lundúna. 
Ousmane Dembele er mögulega á leið til Lundúna.  Vísir/Getty

Forráðamenn Chelsea munu gera Ousmane Dembele samningstilboð sigli viðræður hans við Barcelona um framlengingu á samningi sínum við Katalóníufélagið í strand.  

Dembele hefur ekki náð að festa sig almennilega í sessi hjá Barcelona og illa gengur í viðræðum þessa 25 ára gamla framherji við félagið um nýjan samning. 

Samningur Dembele við Barcelona rennur út um næstu mánaðamót og Chelsea hyggst freista þess að semja við framherjann verði hann laus allra mála þá. 

Ef marka má enska fjölmiðla vil Thomas Tuchel hressa upp á framlínu sína en Raheem Sterling er einnig orðaður við félagið. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×