Innlent

„Kaup­fé­lag Skag­firðinga virðist í sér­stökum verndar­flokki hjá þessari ríkis­stjórn“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingar.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingar. vísir/vilhelm

Alþingi samþykkti í dag þriðja áfanga rammaáætlunar með 34 atkvæðum. Sjö greiddu atkvæði á móti en fimmtán sátu hjá. Bjarni Jónsson í Vinstri grænum greiddi atkvæði gegn áætluninni, einn stjórnarliða.

Við atkvæðagreiðslu á þinginu í dag gáfu tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar í skyn að hagsmunir Kaupfélags Skagfirðinga hefðu ráðið för við gerð rammaáætlunar.

Ríkisstjórnin hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að færa Héraðsvötn í Skagafirði og Kjalöldur í Þjórsá úr verndarflokki í biðflokk. Stjórnarandstaðan gerði lokatilraun til að halda þessum virkjanakostum í verndarflokki rammaáætlunar í gær en sú tillaga var felld.

„Það er hlustað á vælið í Kaupfélagi Skagfirðinga“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrum þingmaður Vinstri grænna, sagði innviðaráðherra hafa komið í veg fyrir stækkun friðlands í Þjórsárverum „sem gerir einmitt Landsvirkjun kleift að keyra áróður fyrir Kjalölduveitu í gegnum þingið.“

Andrés gaf þá í skyn að Kaupfélag Skagfirðinga hafi haft áhrif á tilfærslu Héraðsvatna úr verndarflokki í biðflokk.

„Og það er hlustað á vælið í Kaupfélagi Skagfirðinga af því að það vill fá sína virkjun.“

„Hagsmunaöflunum er þjónað í tillögum meiri hlutans. Það er gerð pólitísk málamiðlun án faglegra og málefnalegra röksemda í þágu gjörnýtingarsinnanna. Og hver líður fyrir? Náttúra Íslands í boði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, gjörið svo vel,“ sagði Andrés er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu gegn áætluninni.

KS og náttúruperlur í verndarflokk

Jóhann Páll Jóhannsson tók í sama streng við atkvæðagreiðsluna og sagði engin sannfærandi rök hafa verið færð fram fyrir tilfærslunni.

„Það má vera að Kaupfélag Skagfirðinga sé í sérstökum verndarflokki hjá þessari ríkisstjórn [Hlátur í þingsal.] en mér finnst að þessar náttúruperlur megi bara vera það líka.“

Ræður Andrésar og Jóhanns má sjá í heild sinni á vef Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×