Lífið

Mikilvægar æfingar fyrir göngugarpinn frá Önnu Eiríks

Elísabet Hanna skrifar
annaeiriks_18
Aðsend

Þjálfarinn Anna Eiríksdóttir nýtur þess að styrkja líkamann með góðri hreyfingu og deilir mikilvægum æfingum fyrir göngugarpa hér á Vísi. Hún skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu og við gefum henni orðið:

Ísland býr yfir stórbrotinni náttúru sem er dásamlegt að hreyfa sig í hvort sem það er með fjallgöngum, náttúruhlaupum eða góðum göngutúrum. Mikil vakning hefur orðið fyrir því að hreyfa sig úti en það nærir ekki aðeins kroppinn heldur einnig sálina því það er magnað hvað náttúran og súrefnið gerir mikið fyrir andlegu hliðina. 

Til að forðast það að lenda í meiðslum og hlúa að ákveðnu jafnvægi í líkamanum er mikilvægt að gera góðar styrkjandi æfingar fyrir neðri hlutann sérstaklega svo hann sé betur í stakk búinn fyrir hlaupin og fjallgöngurnar. Einnig er mikilvægt að styrkja kjarnavöðva líkamans og síðast en ekki síst er mikilvægt að teygja vel á vöðvunum og nudda þá með nuddrúllu eða nuddbolta.

Hérna eru nokkrar góðar æfingar sem ég mæli með að gera en þær eru úr þáttaröðinni Hreyfum okkur saman og er hver æfing 15 mínútur. Það má gera æfingarnar allar saman sem eina æfingu eða velja sér æfingu til að gera strax eftir gönguna/hlaupin.

Gangi ykkur vel og njótið sumarsins í botn!

Aðsend

Tengdar fréttir

Hlaupaáætlum frá Önnu Eiríks: Hlaupum inn í sumarið!

Þjálfarinn Anna Eiríksdóttir segir sumarið upplagðan tíma til þess að stunda hreyfingu úti og deilir níu vikna hlaupaáætlun með lesendum Vísis. Hún skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu og við gefum henni orðið:

Hafragrauturinn sem slegið hefur í gegn

Anna Eiríksdóttir skrifar um ýmislegt sem viðkemur heilsu og hollu mataræði á Lífinu á Vísi. Í pistli dagsins deilir hún hugmyndum af uppskriftum fyrir hafragraut. Við gefum henni orðið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.