Sport

Dagskráin í dag: Keppni heldur áfram á Opna breska

Hjörvar Ólafsson skrifar
Cameron Young er í forystu á Opna breska meistaramótinu. 
Cameron Young er í forystu á Opna breska meistaramótinu.  Vísir/Getty

Sýnt verður frá öðrum keppnisdegi á Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á St. Andrews á Stöð 2 Golf í dag. 

Útsending frá Opna breska meistaramótinu hefst klukkan 05.30 en sýnt verður frá upphitun kylfinganna sem leika á mótinu á Stöð 2 Sport 2. 

Beint útsending frá Great Lakes Bay Invitational, sem er hluti af LPGA-mótaröðinni hefst svo klukkan 17.00 á Stöð 2 Sport 4.

Þá verður byrjað að sýna frá PGA-mótinu Barracuda-Championskip klukkan 22.00 á Stöð 2 Golf.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×