Arsenal og City ná samkomulagi um kaupverð á Zinchenko Atli Arason skrifar 16. júlí 2022 19:15 Arteta og Zinchenko unnu ensku úrvalsdeildina tvisvar sinnum saman hjá Manchester City. Hérna eru þeir með bikarinn eftirsótta árið 2019 eftir sigur City á Brighton í lokaumferð deildarinnar. Getty Images Arsenal ætlar að sér að kaupa annan leikmann frá Manchester City en hinn úkraínski Oleksandr Zinchenko gæti verið á leið til Lundúna.
Munnlegt samkomulag á milli liðanna á að vera í höfn sem hljómar upp á 30 milljónir punda samkvæmt heimildum breska miðilsins Guardian. Næst á dagskrá er að Arsenal nái samkomulagi við leikmanninn sjálfan um kaup og kjör. Gangi félagaskiptin í gegn verður Zinchenko fimmti leikmaðurinn sem Arsenal kaupir í sumar á eftir Fabio Vieira frá Porto, Marquinhos frá Sao Paulo, Matt Turner frá New England Revolution og Gabriel Jesus, sem kom einnig frá Manchester City. Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, þekkir vel til Zinchenko en hann vann með leikmanninum þegar hann var aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá Manchester City á árunum 2016-2019, áður en hann tók við Arsenal. Zinchenko er 25 ára gamall en hann kom til City frá rússneska liðinu Ufa árið 2016. Zinchenko er að upplagi miðjumaður en hefur oftast spilað sem vinstri bakvörður undir Guardiola hjá Manchester City. Getur leikmaðurinn því leyst margar mismunandi stöður en Goal.com telur að Arsenal muni nota Úkraínumanninn á miðjunni en félagið hefur verið að leitast eftir því að styrkja miðsvæðið frá því að félagaskiptamarkaðurinn opnaði.
Enski boltinn Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Í beinni: Everton - Manchester United | Framlengir Moyes martröð Rauðu djöflanna? Enski boltinn Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Everton - Manchester United | Framlengir Moyes martröð Rauðu djöflanna? Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Maddison var að sussa á Roy Keane Ekki unnið heimaleik í 105 daga þangað til Man United kom í heimsókn Enginn lagt upp fleiri mörk en Ederson Hetjan Maddison: Er hérna til að skapa færi og skora mörk Man City fór létt með Liverpool „Staða okkar í töflunni veldur mér áhyggjum“ Dagný og Hlín komu við sögu í sigrum West Ham og Leicester Maddison tryggði langþráðan heimasigur Diaz kom Liverpool í toppmál Armstrong til Man United frá PSG Sjá meira