Fótbolti

Elías Rafn stóð á milli stanganna í jafntefli

Hjörvar Ólafsson skrifar
Elías Rafn Ólafsson var í marki Midtjylland í kvöld. 
Elías Rafn Ólafsson var í marki Midtjylland í kvöld.  Vísir/Getty

Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í mark danska liðsins Midtjylland þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn kýpverska liðinu AEK Larnaca í fyrri leik liðanna í annarri umferð í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld. 

Adam Gyurcso fann leið framhjá Elíasi Rafni og kom AEK Larnaca en leikurinn fór fram á MCH Arena í Herning, heimavelli Midtjylland. 

Það var hins vegar danski miðvörðuinn Erik Sviatchenko sem jafnaði metin fyrir Midtjylland og þar við sat. 

Liðin leiða saman hesta sína í seinni leik sínum í Larnaca á Kýpur eftir slétta viku. 

Elías Rafn er tiltölulega nýkominn aftur inn á völlinn eftir að hafa jafnað sig á handleggsbroti sem hann varð fyrir undir lok siðustu leiktíðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×