Blikar voru mikið mun sterkari aðilinn í leik kvöldsins en það tók vissulega sinn tíma fyrir þá að sækja mörkin tvö sem skiluðu sigri í kvöld. Alls fengu gestirnir tvö rauð spjöld, tveir leikmenn sem og þjálfari þeirra. Það ætlaði allt að sjóða upp úr í lok leiks og má búast við áhugaverðum leik í Svartfjallalandi að viku liðinni.
„Er mjög sáttur við að við náum tveimur mörkum og við þurfum að fara til Svartfjallalands og vinna þá þar,“ bætti Óskar Hrafn við.
„Við hefðum viljað spila aðeins hraðar, vera aðeins grimmari í teignum. Þetta er gott lið, þetta er fínt lið. Kannski vantaði aðeins meira tempó á síðasta þriðjung og aðeins betri ákvarðanatöku. Vorum að komast í fullt af góðum stöðum, bæði í fyrri hálfleik sem og þeim seinni. Vantaði aðeins skerpuna á lokasendingunni en Evrópuleikir eru oft snúnir.“
„Ég hugsa að það hefði auðveldlega verið hægt að bæta við 12-15 mínútum frekar en þessum fimm sem var bætt við. Þeir kunna að hægja á leiknum, kunna tefja og voru svo sem byrjaðir á því í fyrri hálfleik. Held það sé sterkt að vinna þá 2-0 og einbeita okkur að leiknum gegn FH á sunnudag.“
„Ég hef ekki séð þessa hegðun áður verð ég að viðurkenna, þó ég sé ekki hokinn af reynslu. Ég hef ekki upplifað á boðvangi andstæðinganna svona árasargjarna hegðun og svona mikla reiði. Ég ætla að reyna ímynda mér hvað við eigum í vændum í Podgorica eftir viku.“
„Ég met þetta nú þannig að það var nú ekki mikil alvara í þessu. Held þeir hafi meira verið að keyra sig upp fyrir seinni leikinn og búa til einhverja grýlu úr Damir sem er af serbnesku bergi brotinn. Það er ómögulegt að segja hvað bíður okkur þar, það þarf bara að skoða það. Auðvitað ber liðið ábyrgð á því að standa vörð um öryggi okkar á meðan við erum í landinu og ég trúi ekki öðru en það verði gert.“
„Kannski þurfum við að huga að því að eyða eins litlum tíma og við getum í þessu ágæta og fallega landi en það verður að koma í ljós.“
„Það verður ekkert mál, menn ná sér niður í kvöld: borða vel og hvílast. Svo á morgun verða menn klárir í að undirbúa sig fyrir FH leikinn. Við höfum spilað það oft á þriggja daga fresti og leiki þar sem tilfinningarnar hafa verið rússíbani að ég hef engar áhyggjur,“ sagði Óskar Hrafn að lokum er hann var spurður út í hvernig það væri fyrir liðið að ná sér niður eftir svona leik þar sem næsti leikur er strax á sunnudaginn kemur.