Fótbolti

Segir að Messi hafi ekki ritað sinn seinasta kafla hjá Barcelona

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Joan Laporta segir að Messi hafi ekki sagt sitt síðasta hjá Barcelona.
Joan Laporta segir að Messi hafi ekki sagt sitt síðasta hjá Barcelona. Joaquin Corchero / Europa Press Sports via Getty Images

Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að Lionel Messi eigi enn eftir að rita einn kafla í sögu sinni hjá félaginu og segir það á sinni ábyrgð að leikmaðurinn fái fallegri endi á tíma sínum hjá Börsungum.

Messi yfirgaf Barcelona seinasta sumar eftir 21 árs langa veru hjá félaginu. Mikil fjárhagsvandræði Börsunga leiddu til þess að félagið hafði ekki efni á því að endurnýja samning ofurstjörnunnar og Messi hélt því til Frakklands þar sem hann leikur nú með PSG.

„Messi var allt,“ sagði Laporta um þennan 35 ára Argentínumann í viðtali við ESPN á dögunum.

„Hann er líklega besti leikmaður Barcelona frá upphafi. Fyrir mér er bara hægt að bera hann saman við Johan Cruyff. En þetta varð að gerast einhvern daginn. Við þurftum að taka ákvörðun sem var afleiðing aðstæðna sem við erfðum. “

„Ég vona að kaflinn um Messi sé ekki búinn. Mér finnst eins og við berum ábyrgð á því að reyna að finna augnablik til að reyna að laga þennan kafla. Kafla sem er enn opinn og við þurfum að laga hann þannig hann endi eins og hann á að enda og að sá endir verði fallegri.“

https://twitter.com/ESPNFC/status/1551522651067371521

Laporta hefur áður talað um það að hann vilji fá Messi aftur til Barcelona. Á tíma sínum hjá liðinu var Messi valinn besti leikmaður heims sex sinnum, ásamt því að vera sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk í sögu félagsins (672) og sá sem hefur spilað flesta leiki (778).

Messi á þó eitt ár eftir af samningi sínum við PSG, auk þess sem samningurinn býður upp á eins árs framlengingu.

„Ég gerði það sem ég þurfti að gera sem forseti Barcelona. En sem forseti Barcelona, og sem persóna, held ég að ég skuldi honum,“ sagði Laporta að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×